Ferill 209. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 235  —  209. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um bætta hljóðvist og aðgerðir til að draga úr erilshávaða í kennsluhúsnæði.


Flm.: Brynhildur Pétursdóttir, Páll Valur Björnsson, Bjarkey Gunnarsdóttir,
Svandís Svavarsdóttir, Elsa Lára Arnardóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir,
Guðbjartur Hannesson, Oddný G. Harðardóttir, Jón Þór Ólafsson.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa starfshóp sem fái það verkefni að tryggja að erilshávaði í kennsluhúsnæði skaði ekki rödd og heyrn nemenda, kennara og starfsmanna og hafi ekki neikvæð áhrif á líðan og námsfærni nemenda. Í þeim tilgangi verði hópnum falið að leggja til nauðsynlegar úrbætur og jafnvel gera tillögur að laga- og reglugerðarbreytingum sé þess þörf.
    Starfshópurinn verði skipaður einum fulltrúa mennta- og menningarmálaráðuneytis, einum fulltrúa umhverfis- og auðlindaráðuneytis, einum fulltrúa velferðarráðuneytis, einum fulltrúa tilnefndum af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, einum fulltrúa tilnefndum af samtökunum Heimili og skóli, einum fulltrúa tilnefndum af umboðsmanni barna, einum fulltrúa tilnefndum af Kennarasambandi Íslands og einum fulltrúa tilnefndum af Heyrnar- og talmeinastöð Íslands. Starfshópurinn hafi samráð við þá hagsmunaaðila sem málið varðar. Niðurstöður hópsins verði kynntar Alþingi fyrir árslok 2015.

Greinargerð.


    Tillaga sama efnis var áður lögð fram á 135. löggjafarþingi (549. mál), 136. löggjafarþingi (87. mál) og 141. löggjafarþingi (391. mál).
    Hinn 9. nóvember 2006 gaf félagsmálaráðherra út reglugerð um varnir gegn álagi vegna hávaða á vinnustöðum, nr. 921/2006. Í 2. gr. segir að reglugerðinni sé ætlað „að tryggja öryggi og vernda heilsu starfsmanna sem eiga á hættu eða kunna að eiga á hættu að verða fyrir álagi vegna hávaða við störf sín, einkum álagi er kann að leiða til heyrnarskaða“.
    Eins þörf og setning þessarar reglugerðar var, þá tekur hún aðeins til hluta þess hóps sem á það á hættu að verða fyrir heyrnarskaða, þ.e. starfsmanna og vinnuumhverfis þeirra, en ekki til þess fjölmenna hóps sem eru börn og kennarar á öllum skólastigum.
    Margar rannsóknir hafa sýnt fram á að hávaði geti haft neikvæð áhrif á líðan og námsfærni barna og unglinga, svo sem lesskilning og málþroska. * Er þá bæði horft til hávaða sem kemur utan frá, t.d. frá umferð eða framkvæmdum, og þess hávaða sem myndast inni í kennslurými og er kallaður erilshávaði. Yfirvöld verða að tryggja að börnum sé boðið upp á góða vinnuaðstöðu þar sem hávaði er undir þeim mörkum að þau hljóti skaða af og geti stundað nám með sem bestum árangri.
    Í bæklingnum „Hljóðvistarkröfur í umhverfi barna – Leiðbeiningar“ sem Umhverfisstofnun gaf út 2012 segir orðrétt: „Hávaði getur haft skaðleg áhrif bæði á heyrn og aðra lífeðlisfræðilega, vitsmunalega og atferlislega þætti hjá börnum. Áhrif á heyrn geta komið fram sem minnkuð eða skert heyrn, minna þol fyrir hávaða eða suð fyrir eyrum (tinnitus). Hávaði getur einnig haft neikvæð áhrif á náms- og tungumálagetu barns, drifkraft og einbeitingu, auk þess að minnisgeta getur minnkað sem og hæfni til að takast á við flókin verkefni. Hávaði getur vakið upp streituviðbrögð hjá börnum sem m.a. koma fram sem aukinn hjartsláttur og hormónaviðbragð, auk þess sem hávaði getur truflað svefnmynstur og hindrað þannig nauðsynlega orkuuppsöfnun líkama og heila. Óbeint getur hávaði haft neikvæð áhrif á röddina, því um leið og barn neyðist til að tala hærra til að yfirgnæfa hávaða getur það leitt til hæsis og hnúta á raddböndum.
    Evrópskar rannsóknir hafa sýnt fram á að langvarandi hávaði hefur neikvæð áhrif á heilsu og frammistöðu barna. Sumum hávaðauppsprettum er ekki hægt að komast hjá, en hægt er að koma í veg fyrir eða minnka neikvæð áhrif af þeirra völdum með góðu skipulagi, hönnun og úrbótum.“
    Ekki þarf því að draga í efa að hávaði í umhverfi fólks getur haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar og er sérstaklega mikilvægt að hlífa börnum við hávaða eins og kostur er. Sé einnig minnsti grunur um að hávaði geti haft áhrif á námsfærni barna ber að taka slíkt mjög alvarlega. Börn og unglingar eiga rétt á því að þeim séu tryggðar eins góðar vinnuaðstæður og völ er á. Ýmislegt bendir til þess að hávaði sé víða yfir æskilegum mörkum. Við því þarf að bregðast.
     Önnur hlið á þessum vanda snýr að röddinni og þeim skaða sem hún getur hæglega orðið fyrir við þær aðstæður sem einkenna jafnan hljóðvist í kennsluhúsnæði. Líta ber á röddina sem atvinnutæki kennara og huga að henni út frá vinnuverndarsjónarmiðum. Í því felast ekki aðeins aðgerðir til þess að draga úr erilshávaða í skólabyggingum heldur þarf einnig að huga að réttri raddbeitingu sem hluta af kennaranámi.
Neðanmálsgrein: 1
*     Shield og Dockrell: The effects of environmental and classroom noise on the academic attainments of primary school children (2007). eprints.ioe.ac.uk/926/1/Shield2008The_Effects133.pdf