Ferill 215. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 244  —  215. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um umferðareftirlit.

Frá Þórunni Egilsdóttur.


     1.      Er hafin eða mun hefjast vinna innan ráðuneytisins við að sameina umferðareftirlit Samgöngustofu lögreglunni eins og lagt er til í bókun 1 í tillögum þingmannanefndar um skiptingu viðbótarfjármagns til löggæslu 2014?
     2.      Hvenær er áætlað að niðurstöður liggi fyrir og framkvæmd hefjist, ef af verður?


Skriflegt svar óskast.