Ferill 220. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 249 — 220. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um samhæfða framkvæmd stjórnvalda
við að tryggja skilvirk úrræði fyrir þolendur kynferðisbrota, einkum börn.
Frá Guðbjarti Hannessyni.
1. Hefur verið komið á laggirnar samráðshópi barnaverndaryfirvalda, lögreglu og ákæruvalds með þátttöku fulltrúa ríkissaksóknara undir sameiginlegri forustu innanríkis- og velferðarráðuneytis eins og samráðshópur forsætisráðherra um samhæfða framkvæmd stjórnvalda við að tryggja skilvirk úrræði fyrir þolendur kynferðisbrota, einkum börn, lagði til í skýrslu forsætisráðuneytis í apríl 2013?
2. Hver er staða mála varðandi opnun nýs Barnahúss með bættri aðstöðu fyrir þá sem erindi eiga í Barnahús, sbr. 3. tillögu samráðshópsins?
3. Hefur stuðningur verið efldur við foreldra og aðra nána aðstandendur barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðisofbeldi í samræmi við 5. tillögu samráðshópsins? Ef svo er, á hvaða hátt?
4. Hefur verið tryggð fjármögnun, framhald og útvíkkun vinnu við vitundarvakningu gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum í samræmi við ákvæði samnings Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misnotkun barna, sbr. 9. tillögu hópsins? Hefur ráðherra gripið til aðgerða til að tryggja að þessi vitundarvakning verði fest í sessi til frambúðar í þeim anda sem UNICEF og fleiri aðilar hafa lagt til, svo sem með ofbeldisvarnaráði? Hefur verið skipuð verkefnisstjórn og verkefnisstjóri vegna þessa verkefnis?
5. Hefur verið stofnaður rannsóknarsjóður sem nýta má til mats á forvarnaverkefnum eða frekari rannsókna á umfangi og eðli ofbeldis, þ.m.t. kynferðisofbeldis, vanrækslu, heimilisofbeldis og kláms, sbr. 11. tillögu hópsins? Ef svo er, hefur fjármagn verið tryggt í slíkan sjóð?
6. Hefur ráðherra í samráði við ráðherra þeirra ráðuneyta sem mynduðu samráðshópinn gert tillögur vegna fræðslu um heimilisofbeldi, lagt á þær kostnaðarmat og gert tillögur til að tryggja þeim nægt fjármagn í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2015, sbr. 12. tillögu hópsins?
7. Hefur ráðherra í samráði við heilbrigðisráðherra gert tillögu um fjárveitingu í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2015 til að efla félagasamtök sem sinna þolendum kynferðisofbeldis, sbr. 15. tillögu hópsins?
8. Hversu hárri fjárhæð er áætlað að ráðstafa til framangreindra verkefna á þessu ári og á því næsta samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2015?
Skriflegt svar óskast.