Ferill 231. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 260  —  231. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um lönd og veiðirétt Landsvirkjunar
við Þingvallavatn, Efra-Sog og Úlfljótsvatn.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.


     1.      Hvaða lönd á Landsvirkjun við Þingvallavatn, Efra-Sog og Úlfljótsvatn? Óskað er eftir að kort fylgi þar sem nákvæmlega kemur fram um hvaða hlut strandlengjunnar í fyrrgreindu vatnakerfi er að ræða og hversu langt út í vötn forræði eða eignarhald Landsvirkjunar nær.
     2.      Hvaða veiðirétt hefur Landsvirkjun á fyrrgreindum svæðum? Óskað er upplýsinga um fjölda neta og stanga á dag sem réttinum fylgja formlega, veiðitíma og veiðireglur.
     3.      Hvernig er þessi réttur nýttur? Er einhver hluti hans framseldur öðrum til nýtingar?


Skriflegt svar óskast.