Ferill 233. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 262 — 233. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um starfsstöðvar og þjónustu sýslumanna í Norðausturkjördæmi.
Frá Bjarkeyju Gunnarsdóttur.
1. Hvernig miðar þeim breytingum sem verða á starfsstöðvum sýslumanna í Norðausturkjördæmi samkvæmt lögum nr. 50/2014?
2. Telur ráðherra að þjónusta sýslumanna verði svipuð og nú eftir breytingarnar?
3. Telur ráðherra að sá tími sem veittur var til að undirbúa og skipuleggja hin nýju embætti, þjónustu þeirra og aðra starfsemi sé nægur?
4. Telur ráðherra að áætlaðar fjárveitingar í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2015 nægi sýslumannsembættunum til að veita sambærilega þjónustu og nú er veitt?
5. Er tryggt að löglærðir fulltrúar verði á þeim starfsstöðvum þar sem áður var sýslumaður?