Ferill 235. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 264  —  235. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um fjölda nemenda í framhaldsskólum.

Frá Oddnýju G. Harðardóttur.


     1.      Hve margir nemendur hófu nám í framhaldsskóla á haustönn 2014, greint eftir skólum og tilgreindum fjölda á bóknámsbrautum og verknámsbrautum?
     2.      Hve margir þessara nemenda voru 25 ára og eldri, greint á sama hátt?
     3.      Hve margir ársnemendur alls hófu nám í framhaldsskóla á sama tíma, greint eftir skólum og tilgreindum fjölda á bóknámsbrautum og verknámsbrautum og hve margir þeirra voru 25 ára og eldri?


Skriflegt svar óskast.