Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 265  —  236. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000,
með síðari breytingum (heræfingar).


Flm.: Steinunn Þóra Árnadóttir, Svandís Svavarsdóttir, Ögmundur Jónasson.


1. gr.

    Við 11. tölul. 2. viðauka við lögin bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Heræfingar, þ.m.t. lágflugsæfingar, utan varnar- og öryggissvæða.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Heræfingar hafa verið algengar á undanförnum árum á íslensku landi og lögsögu, einkum það sem kallað er loftrýmiseftirlit. Þróun þessa ber að harma og væri íslenskum stjórnvöldum sæmst að taka með öllu fyrir hverslags hernaðarumsvif hér á landi. Heitið loftrýmiseftirlit er ekkert annað en skrauthvörf fyrir það sem réttu nafni ætti að kallast æfingabúðir fyrir þotuflugmenn Nató-ríkja. Þar til tekið hefur verið fyrir hvers lags heræfingar telja flutningsmenn hins vegar rétt að reynt verði með öllum tiltækum ráðum að takmarka þann skaða sem af slíkum æfingum kann að hljótast.
    Í 1. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum er gerð grein fyrir markmiðum laganna. Þar kemur fram að þeim er ætlað að draga eins og kostur er úr neikvæðum áhrifum framkvæmda, stuðla að samvinnu þeirra sem hagsmuna hafa að gæta eða láta sig málið varða og tryggja sem besta upplýsingamiðlun til almennings vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Allir ættu að geta samþykkt ágæti þessara markmiða.
    Nú er það kunn staðreynd að starfsemi af hernaðarlegum toga, þ.m.t. heræfingar, getur haft í för með sér mikil og neikvæð umhverfisáhrif. Hernaðarstarfsemi er oftar en ekki afar mengandi, má í því samhengi benda á mengunarsvæði á og við gömlu herstöðina á Miðnesheiði og gömul skotæfingasvæði bandaríska hersins á Reykjanesskaga.
    Auk olíu- og þungmálmamengunar geta heræfingar haft í för með sér umtalsvert ónæði og truflun í formi hljóðmengunar. Dæmi eru um að lágflugsæfingar herþotna hafi raskað ró fólks og komið styggð að dýrum. Mönnum er í fersku minni þegar tvær herþotur í lágflugi fældu allan fugl úr Látrabjargi á varptíma vorið 2002. Einnig hafa aðilar í ferðaþjónustu gagnrýnt harðlega lágflugsæfingar sem skapað hafa stórhættu í hestaferðum með ferðamenn, má nefna gagnrýni framkvæmdastjóra Íshesta í tengslum við heræfingar nokkurra Nató-þjóða hér á landi sumarið 2007. Þá má nefna kvartanir frá hvalaskoðunarfyrirtækjum og aðilum sem láta sér annt um arnarvarp við Breiðafjörð, eins og komið hefur fram í fjölmiðlum, nú síðast í byrjun þessa árs. Í þessu sambandi er einnig rétt að nefna ákveðnar óskir sem fram hafa komið hjá einstökum sveitarstjórnarmönnum um að geta staðið gegn heræfingum á sínu yfirráðasvæði. Má þar benda á borgarstjórn Reykjavíkur og fyrrverandi borgarstjóra, Jón Gnarr, sem viðrað hefur slík sjónarmið.
    Með því að fella heræfingar undir lög um mat á umhverfisáhrifum er tryggt að hagsmunaaðilar á borð við sveitarfélög, landeigendur, ferðaþjónustufyrirtæki og útivistarfólk geti komið að athugasemdum varðandi framkvæmd og staðarval heræfinga og með því reynt að draga úr skaða vegna þeirra, uns tekið verður fyrir þær með öllu.