Ferill 245. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 274 — 245. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um áhrif fækkunar sýslumanna í Norðausturkjördæmi.
Frá Bjarkeyju Gunnarsdóttur.
1. Hversu margir sýslumenn þiggja biðlaun vegna fækkunar sýslumanna í Norðausturkjördæmi samkvæmt lögum nr. 50/2014?
2. Hversu margir starfsmenn sýslumannsembætta fá ekki sambærilega vinnu og þeir voru í fyrir breytinguna sem gildistaka laga nr. 50/2014 veldur?
3. Hversu margir starfsmenn sýslumannsembætta í Norðausturkjördæmi hafa verið ráðnir til starfa á öðrum umsýslusviðum ráðuneytisins?
4. Hversu há eru framlög ríkissjóðs á hvern íbúa Norðausturkjördæmis vegna sýslumannsembætta?
Skriflegt svar óskast.