Ferill 145. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 286  —  145. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur
um menntun áfengis- og vímuefnaráðgjafa.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Er verið að endurskoða námskröfur sem gerðar eru til áfengis- og vímuefnaráðgjafa í samræmi við ábendingu landlæknis um nauðsyn þess að slík endurskoðun fari fram sem taki mið af menntun sambærilegra stétta í nágrannalöndum okkar?

    Samkvæmt reglugerð nr. 1106/2012 um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuefnaráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi gerir landlæknir tillögur, í samráði við stofnanir sem veita menntun í áfengis- og vímuefnaráðgjöf, sem og fagráð landlæknis um áfengis- og vímuefnaráðgjafa og aðra sem landlæknir metur hæfa, um nauðsynlega menntun fyrir áfengis- og vímuefnaráðgjafa og hvernig henni skuli hagað. Tillögurnar eru sendar ráðherra til staðfestingar.
    Menntunin fer ekki fram á ákveðnu skólastigi en er veitt á heilbrigðisstofnunum í samræmi við nánari skilgreiningu í reglugerðinni. Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis fer námið nú aðallega fram hjá SÁÁ.
    Endurskoðun á námi áfengis- og vímuefnaráðgjafa var nokkuð til umræðu hjá fagráði landlæknis um áfengis- og vímuefnaráðgjafa, einkum á árunum 2009 og 2010. Ýmsar leiðir voru ræddar, svo sem að námið yrði á framhaldsskólastigi og gæti verið hluti af einingum til stúdentsprófs og byggt upp á svipaðan hátt og sjúkraliðanám. Þá var rætt um að mikilvægt væri að einnig yrði boðið upp á nám á háskólastigi, t.d. diplómanám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf. Um gæti verið að ræða þverfaglegt nám fyrir heilbrigðisstéttir til sérhæfingar á sviði áfengis- og vímuefnaráðgjafar. Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis er nauðsynlegt að endurskoða námskröfur áfengis- og vímuefnaráðgjafa en fyrirætlanir um að endurskoða námið hafa þó legið niðri um nokkurt skeið. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um á hvaða skólastigi námið yrði en mennta- og menningarmálaráðuneytið fer með málefni framhaldsskóla og háskóla.