Ferill 150. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 288 — 150. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur
um þátttöku Sjúkratrygginga Íslands í ferðakostnaði.
1. Hver er þátttaka Sjúkratrygginga Íslands í ferðakostnaði sjúklinga sem búsettir eru á svokölluðu Kragasvæði, t.d. Akranesi, Selfossi og Suðurnesjum, og þurfa reglulega að sækja lífsnauðsynlega læknismeðferð til Reykjavíkur, svo sem nýrnaskiljun og geislameðferðir vegna krabbameins?
Reglugerð nr. 871/2004 um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innan lands fjallar um þátttöku ríkisins í ferðakostnaði sjúklinga sem búsettir eru á Kragasvæðinu, sem og annars staðar. Í 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar er fjallað um þátttöku Sjúkratrygginga Íslands í ferðakostnaði vegna ítrekaðra ferða þegar um er að ræða alvarlega sjúkdóma og eru bæði nýrnabilun og illkynja sjúkdómar sérstaklega tilteknir í greininni. Skilyrðin fyrir þátttöku Sjúkratrygginga Íslands eru tilgreind í 1. mgr. 2. gr. og eru þau „að þjónustan sé ekki fyrir hendi í heimahéraði og að ekki sé unnt að nota eða bíða eftir skipulögðum lækningaferðum út í héruð á vegum heilbrigðisstjórnar eða annarra aðila“. Í 3. gr. kemur fram að þegar um stuttar en ítrekaðar ferðir vegna þeirra sjúkdóma sem tilgreindir eru í 2. mgr. 2. gr. er að ræða endurgreiði Tryggingastofnun ríkisins (nú Sjúkratryggingar Íslands) 3/ 4hluta ferðakostnaðar með leigubifreið milli aðseturs sjúklings og meðferðarstaðar samkvæmt framlögðum kvittunum þótt vegalengd sé skemmri en 20 km, enda sé sjúklingur ekki fær um að ferðast með áætlunarbifreið eða almenningsvagni. Sé eigin bifreið notuð í slíkum tilvikum endurgreiðir Tryggingastofnun ríkisins (nú Sjúkratryggingar Íslands) 2/ 3hluta kostnaðar sem miðast við 17,20 kr. á ekinn km.
Sjúkratryggingar Íslands birta á vefsíðu sinni þá viðmiðunarfjárhæð sem kílómetragjaldið miðast við á hverju ári og var sú fjárhæð 33,05 kr. fyrir árið 2013. Samkvæmt heimildum frá Sjúkratryggingum Íslands hafa ekki verið gerðar breytingar á þeirri fjárhæð fyrir árið 2014.
2. Stendur til að endurskoða reglur um þátttöku Sjúkratrygginga Íslands í ferðakostnaði?
Reglur um sjúkratryggingar eru í sífelldri endurskoðun og liggur fyrir ríkur vilji til þess að betrumbæta það kerfi sem til staðar er. Þátttaka Sjúkratrygginga Íslands í ferðakostnaði sjúklinga er mikilvægur liður í að tryggja góðan aðgang allra að heilbrigðisþjónustu. Endurskoðun þeirra reglna sem gilda um hlutdeild Sjúkratrygginga Íslands í kostnaði sjúklinga verður að taka mið af þeim fjárheimildum sem Alþingi ákvarðar í fjárlögum hvert ár.