Ferill 164. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 290  —  164. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur
um þjónustusamning um líffæri


     1.      Við hvaða aðila er núverandi þjónustusamningur um líffæri? Hver er kostnaðurinn við þann samning á ári?
    Núverandi þjónustusamningur um líffæri er við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg. Kostnaður kemur fram í meðfylgjandi töflu og er reiknaður á árslokagengi 2013.

Sahlgrenska sjukhuset
Verðlisti líffæraígræðslna í ÍSK, árslokagengi 2013
2009 2010 2011 2012 2013
Nýrnaígræðsla 6.737.539 6.476.149 6.292.747 6.090.939 6.306.880
Fjöldi 1 3 5 6 8
Lifrarígræðsla 20.807.106 19.999.871 19.433.484 18.810.253 19.477.145
Fjöldi 2 3 3 1 6
Nýru og bris 20.807.106 19.999.871 19.433.484 18.810.253 19.477.145
Fjöldi 0 0 1 0 1
Lungnaígræðsla 25.761.179 24.761.745 24.060.504 23.288.885 24.114.560
Fjöldi 0 2 2 4 2
Hjartaígræðsla 26.751.994 25.714.120 24.985.909 24.184.611 25.042.046
Fjöldi 2 2 3 1 1

    Þá má geta þess að í gildi er samningur um mergígræðslur við Karolinska sjukhuset í Stokkhólmi og í meðfylgjandi töflu má sjá kostnað og fjölda ígræðslna.

Karolinska sjukhuset
Meðalverð fyrir einstakar ígræðslur, árslokagengi 2013. (Ekki fast verð fyrir hverja ígræðslu.)
2009 2010 2011 2012 2013
Mergígræðslur 37.093.989 22.583.517 24.107.505 26.686.574 28.395.194
Fjöldi einstaklinga 10 4 11 5 5

     2.      Við hvaða aðila var fyrri samningur? Hvað kostaði sá samningur á ári miðað við núverandi verðlag?
    Fyrri samningur var við Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn (Rigshospitalet). Kostnaður kemur fram í meðfylgjandi töflu og er reiknaður á árslokagengi 2013.

Rigshospitalet
Verðlisti líffæraígræðslna í ÍSK, árslokagengi 2013
Ígræðslur 2008 2009
Nýru 9.953.727
Fjöldi 7 1
Lifur 27.155.832
Flöldi 5 3
Lungu 11.031.524
Fjöldi 2 0
Hjarta 11.683.177
Fjöldi 0 0

     3.      Hefur ráðherra skoðað hvort rétt sé að endurskoða gildandi samning árlega með tilliti til kostnaðar, biðtíma eftir líffærum og lengd biðlista?
    Allir samningar sem íslensk heilbrigðisyfirvöld gera við erlendar stofnanir eru í stöðugri endurskoðum með tilliti til kostnaðar, biðtíma eftir þjónustu og gæða þjónustunnar. Ekki er bolmagn til að endurskoða samningana að öllu leyti ár hvert en ávallt eru einhverjir þættir í skoðun, þar með talið ef möguleikar opnast fyrir ódýrari eða betri þjónustu hjá öðrum erlendum stofnunum.

     4.      Telur ráðherra biðtímann og fjölda ígræðslna innan þeirra marka sem eru ásættanleg?
    Biðtími sjúklinga getur verið misjafn eftir aðstæðum og framboði á líffærum sem viðkomandi líffæraþegi þolir að taka á móti. Þegar íslenskir líffæraþegar eru jafn fáir og raun ber vitni er ekki raunhæft að reikna og bera saman biðtíma þeirra frá ári til árs. Einstaka erfið tilfelli geta lengt meðalbiðtímann mikið og auðveldari tilfelli stytt hann að sama skapi. Árin verða því ekki sambærileg. Það verður því miður aldrei hjá því komist að torvelt geti reynst að finna líffæri sem getur samrýmst þeim einstaklingi sem þarf á slíku líffæri að halda. Sjúkratryggingar Íslands leggja mat á stöðuna með því að skoða lengri tímabil. Fyrst og fremst verður að líta til biðtíma sjúkrahúsanna á Norðurlöndunum. Stofnunin hefur talið biðtíma ásættanlegan þrátt fyrir að einstaka líffæraþegar hafi stundum þurft að bíða lengi eftir líffæri. Þar er litið svo á að flutningur þjónustunnar úr einum stað í annan tryggi engan veginn að biðtími styttist, einfaldlega vegna þess að margir þættir sem erfitt er að stýra hafa áhrif á þennan þátt. Þannig hefur staðan varðandi biðtíma eftir einstökum líffærum verið breytileg frá einum tíma til annars á þeim sjúkrahúsum sem við eigum möguleika á að leita til um þjónustu.