Ferill 119. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 326  —  119. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birgittu Jónsdóttur
um haldlagningu netþjóna.


    Við vinnslu svars við fyrirspurninni óskaði ráðuneytið eftir umsögnum allra lögregluembætta á landinu, þ.m.t. embættis sérstaks saksóknara. Svör bárust frá öllum lögregluembættunum nema lögregluembættinu í Borgarnesi. Lagt er til grundvallar að með netþjóni eða sýndarvél sé átt við miðlara þar sem gögn eru samnýtt. Þannig taki fyrirspurnin ekki til einmenningstölva, síma eða annarra tækja sem geta miðlað gögnum og mætti því kalla netþjóna í víðasta skilningi þessa orðs.

     1.      Hve oft hefur verið lagt hald á netþjóna, þ.m.t. sýndarvélar, hér á landi eða þeir gerðir upptækir? Svar óskast sundurliðað eftir þeim sem framkvæmdu haldlagningu eða upptöku og þeim sem óskuðu eftir henni.
    Í svörum embættanna kemur fram að lögregla hefur ekki lagt hald á netþjóna né gert þá upptæka. Hins vegar hafa gögn af slíkum búnaði í mörgum tilvikum verið haldlögð og eftir atvikum gerð upptæk.

     2.      Hve oft hafa gögn af slíkum netþjónum verið afrituð, í þágu opinberrar rannsóknar, án vitundar og vilja eigenda? Svar óskast sundurliðað eftir þeim sem óskuðu eftir eða framkvæmdu afritun gagna.
    Lögregla hefur ekki afritað gögn af netþjónum nema fyrir liggi samþykki aðila eða dómsúrskurður í samræmi við ákvæði laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008.

     3.      Hafa íslensk yfirvöld fengið beiðni um haldlagningu eða upptöku netþjóna eða afritun gagna af netþjónum frá erlendum aðilum? Ef svo er, frá hvaða aðilum og í hve mörgum tilvikum hefur verið orðið við slíkum beiðnum?

    Íslenskum stjórnvöldum barst réttarbeiðni frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu annars vegar og breskum stjórnvöldum hins vegar um afritun gagna af netþjónum. Orðið var við báðum beiðnunum í samræmi við ákvæði laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, og ákvæði laga um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, nr. 13/1984.