Ferill 144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 329  —  144. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur
um þjónustu fyrir fólk með fíknivanda.


     1.      Hvaða þjónusta er í boði fyrir fólk með fíknivanda og hverjir veita hana?
    Í eftirfarandi töflu kemur fram samantekt yfir þau úrræði sem eru í boði fyrir fólk með fíknivanda og hverjir veita hana. Auk þess nýtur fólk með fíknivanda þjónustu á öðrum sviðum heilbrigðis- og félagsþjónustu sem ætluð eru almenningi. Í fremri dálki kemur fram þjónustuveitandi og í seinni dálki hvaða þjónusta er veitt. Segja má að flest meðferðarúrræði séu að öllu leyti eða að stórum hluta fjármögnuð af ríkinu. Áfangaheimili og húsnæðisúrræði eru flest fjármögnuð af sveitarfélögum og þar er framlag Reykjavíkurborgar mest. Sum úrræði fjármagna ríkið og Reykjavíkurborg í sameiningu. Einnig leggja samtök sem sinna þjónustunni fram sjálfsaflafé til að veita þjónustu. Þá veitir Barnaverndarstofa stuðning í gegnum verkefnið PMT sem er þjálfun í foreldrafærni.

Þjónustuveitandi Þjónusta sem veitt er
Heilsugæslan Forvarnir og fyrstu viðbrögð.
Félagsþjónusta sveitarfélaga Forvarnir og félagsleg aðstoð.
Vímulaus æska Forvarnir, stuðningur.
Landspítali Afeitrun, meðferð á legu-, dag- og göngudeild.
Sjúkrahúsið á Akureyri, legudeild geðdeildar Áfengismeðferð á geðdeild.
SÁÁ Afeitrun, meðferð, fram­haldsmeðferð, stuðningur, eftirfylgni. Þjónusta á legu- og göngudeildum. Viðhaldsmeðferð fyrir ópíumfíkla. Þjónar bæði börnum og fullorðnum. Reka einnig áfangaheimili fyrir fólk sem hætt er í neyslu.
Krýsuvíkursamtökin, meðferðarheimili Langtímameðferð.
Samhjálp Afeitrun, fram­haldsmeðferð og göngudeildarþjónusta. Rekur einnig þrjú áfangaheimili fyrir fólk sem hætt er neyslu og gistiskýli sem er neyðarathvarf.
Reykjavíkurborg, Brautin Áfangaheimili fyrir fólk sem hætt er neyslu.
Draumasetrið Áfangaheimili fyrir fólk sem hætt er neyslu.
Dyngjan Áfangaheimili fyrir konur sem hættar eru neyslu.
Takmarkið Áfangaheimili fyrir fólk sem hætt er neyslu.
Krossgötur Áfangaheimili fyrir fólk sem hætt er neyslu.
Barnaverndarstofa Greining, meðferð og eftirfylgd, m.a. vegna vímuefnavanda á Stuðlum. Rekstur þriggja meðferðarheimila fyrir unglinga með fjölþættan vanda, m.a. vegna vímuefna. Fjölkerfameðferð og önnur meðferðarúrræði til að taka á hegðun, m.a. vegna vímuefna.
Sveitarfélög, félagsþjónusta Ýmis félagslegur stuðningur, m.a. vegna fíknivanda.
Reykjavíkurborg Sérhæft langtímahúsnæðisúrræði á fjórum stöðum.
Rauði krossinn, Konukot Neyðarathvarf.
TR og nokkur sveitarfélög, Grettistak Endurhæfing.

     2.      Hversu miklar fjárveitingar til þjónustu fyrir fólk með fíknivanda eru í fjárlögum fyrir árið 2014?
    Í eftirfarandi töflu eru bein framlög á fjárlögum ríkisins 2014 til þjónustu við fólk með fíknivanda. Auk þess stendur hópnum til boða þjónusta sem ekki er ætluð einum hópi sérstaklega og er kostn­aður vegna þeirrar þjónustu líklega mun meiri vegna þessa hóps en annarra. Kostn­aður þessara þjónustuaðila er hins vegar ekki sérgreindur í rekstri þeirra. Meðal þeirra sem veita þessum hópi umtalsverða þjónustu eru heilsugæslustöðvar en beinn kostn­aður liggur ekki fyrir.

Fjárlagaliður

Fjárhæð (m.kr.)

SÁÁ, sjúkrahús og dagdeildir
731
SÁÁ, göngudeild 45
SÁÁ, Vin 29
Sérhæfð þjónusta Landspítala vegna fíknimeðferðar 500
Krýsuvíkursamtökin 71
Barnaverndarstofa þjónusta 792
Samhjálp, Hlaðgerðarkot 97
Samhjálp, styrkir 6,5
Grettistak, endurhæfingarlífeyrir; á móti veita sveitarfélög endurhæfingu (tölur frá 2012) 85
Krossgötur, áfangaheimili 23
Vímulaus æska 10
Rótin 0,5
Alls 2.390

     3.      Hvernig er eftirliti með nýtingu fjármuna og faglegri þjónustu háttað?
    Landlæknir hefur reglubundið eftirlit með að heilbrigðisþjónusta sem veitt er hér á landi uppfylli faglegar kröfur og ákvæði heilbrigðislöggjafar á hverjum tíma skv. 7. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007. Embætti landlæknis hefur einnig eftirlit með störfum heilbrigðisstarfsmanna skv. 13. gr. sömu laga. Þar er kveðið á um að landlæknir fylgist með að þeir fari að ákvæðum heilbrigðislöggjafar og ákvæðum annarra laga og stjórnvaldsfyrirmæla eftir því sem við á. Þannig hefur landlæknir eftirlit með þjónustu sem veitt er á heilbrigðisstofnunum og þjónustu heilbrigðisstarfsmanna sem veitt er annars staðar en á heilbrigðisstofnunum.
    Samkvæmt 45. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, skal sjúkratryggingastofnunin hafa eftirlit með starfsemi sem veitt er á grundvelli þjónustusamninga sem stofnunin gerir. Þetta miðar að því að tryggja að teg­undir, magn, gæði, kostn­aður og árangur þjónustu sé í samræmi við gerða samninga. Stofnunin skal hafa samráð við landlækni um fyrirkomulag og framkvæmd eftirlits. Kveðið er á um eftirlit í þeim samningum sem gerðir eru.
    Velferðarráðuneytið hefur eftirlit með að þeim styrkjum sem ráðuneytið veitir beint, án aðkomu stofnana ráðuneytisins, sé varið eins og tilgreint er í samkomulagi aðila.
    Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur eftirlit með þjónustu Barnaverndarstofu.
    Einnig fer félags- og húsnæðismálaráðherra með eftirlit með félagsþjónustu sveitarfélaga og þeim úrræðum sem rekin eru á þeirra vegum.
    Sveitarfélög hafa eftirlit með starfsemi sem rekin er á þeirra vegum eða með samningi við þau.