Ferill 297. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 363  —  297. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um fjölda opinberra starfa.

Frá Birni Val Gíslasyni.


     1.      Hafa fjárlög fyrir árið 2014 haft áhrif á fjölda starfa í ráðuneytinu eða stofnunum sem undir ráðuneytið heyra? Ef svo er, hverjar eru breytingarnar og um hve mörg störf er að ræða?
     2.      Hvaða áhrif er áætlað að frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2015, verði það samþykkt óbreytt, hafi á fjölda starfa í ráðuneytinu eða stofnunum sem undir ráðuneytið heyra? Hverjar eru áætlaðar breytingar og um hve mörg störf er að ræða?
    Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum, landshlutum og kyni starfsmanna sem breytingarnar snerta.


Skriflegt svar óskast.