Ferill 310. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 379 — 310. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um framkvæmd þingsályktunar
um bætta heilbrigðisþjónustu við ungt fólk.
Frá Álfheiði Ingadóttur.
Hvað líður framkvæmd ályktunar Alþingis nr. 27/140 um bætta heilbrigðisþjónustu og heilbrigði ungs fólks?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.
Á 140. löggjafarþingi, hinn 15. maí 2012, samþykkti Alþingi tillögu velferðarnefndar til þingsályktunar (680. mál) og fól velferðarráðherra að skipa starfshóp til að vinna að bættri heilbrigðisþjónustu og heilbrigði ungs fólks á aldrinum 14–23 ára. Skyldi hópurinn m.a. undirbúa stofnun unglingamóttöku fyrir fólk á aldrinum 14–23 ára þar sem heilbrigðisþjónusta yrði sniðin að þörfum þess og líta til starfsemi unglingamóttaka í Svíþjóð, Danmörku og Noregi og reynslu af þeim við vinnu sína.