Ferill 313. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Prentað upp.
Þingskjal 384 — 313. mál.
Leiðréttur texti.
Fyrirspurn
til iðnaðar- og viðskiptaráðherra um framlög til rannsókna í þágu
ferðaþjónustu og iðnaðar.
Frá Brynhildi Pétursdóttur.
1. Hve há framlög veitti ríkissjóður árlega á árunum 2010–2013 til rannsókna í þágu ferðaþjónustu annars vegar og iðnaðar hins vegar, skipt eftir fjárlagaliðum?
2. Hvert er áætlað að hafi verið árlegt framlag hvorrar atvinnugreinar fyrir sig til þjóðarframleiðslunnar sömu ár?
3. Til hvaða helstu rannsókna í þágu ferðaþjónustu hefur ríkissjóður veitt framlög árlega sl. fjögur ár?
4. Hvað telur ráðherra eðlilegt að framlög ríkissjóðs til rannsókna vegna fyrrgreindra atvinnugreina séu há sem hlutfall af framlagi atvinnugreinanna til þjóðarframleiðslunnar eða telur ráðherra réttara að miða við eitthvað annað í þessu sambandi og ef svo er, þá hvað?
5. Hvað hafa verið veitt hlutfallslega há framlög til rannsókna í þágu ferðaþjónustu og iðnaðar sl. tvö ár í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Bretlandi?
6. Hvað telur ráðherra einkum að rannsaka þurfi í þágu ferðaþjónustu og iðnaðar á næstu árum fyrir framlög úr ríkissjóði?
Skriflegt svar óskast.