Ferill 318. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 389  —  318. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um Háskóla Íslands og innritunargjöld.

Frá Árna Páli Árnasyni.


     1.      Hvenær stendur til að Háskóli Íslands fái að njóta að fullu innheimtra innritunargjalda?
     2.      Hvenær er gert ráð fyrir að greitt verði með öllum nemendum háskólans?