Ferill 351. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 446  —  351. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðar- og viðskiptaráðherra um kostnað Landsvirkjunar
og umfang vinnu í tengslum við mögulega lagningu sæstrengs.


Frá Ásmundi Friðrikssyni.


     1.      Hver er kostnaður Landsvirkjunar vegna vinnu við könnun á mögulegri hagkvæmni þess að leggja sæstreng á milli Íslands og Bretlands frá 2009 til dagsins í dag? Svar óskast sundurliðað eftir kostnaði innan húss og kostnaði við utanaðkomandi ráðgjöf.
     2.      Hversu marga fundi hefur fyrirtækið átt með fulltrúum breskra stjórnvalda eða breskra fyrirtækja á umræddu tímabili og við hverja hefur verið rætt? Hver er ferðakostnaður vegna þessara funda á framangreindu tímabili?
     3.      Hversu margir vinna beint að þessum málum hjá Landsvirkjun?


Skriflegt svar óskast.