Ferill 219. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 451 — 219. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Guðbjarti Hannessyni um
samhæfða framkvæmd stjórnvalda við að tryggja skilvirk úrræði
fyrir þolendur kynferðisbrota, einkum börn.
1. Hefur verið komið á laggirnar samráðshópi barnaverndaryfirvalda, lögreglu og ákæruvalds með þátttöku fulltrúa ríkissaksóknara undir sameiginlegri forustu innanríkis- og velferðarráðuneytis eins og samráðshópur forsætisráðherra um samhæfða framkvæmd stjórnvalda við að tryggja skilvirk úrræði fyrir þolendur kynferðisbrota, einkum börn, lagði til í skýrslu forsætisráðuneytis í apríl 2013?
Félags- og húsnæðismálaráðherra, innanríkisráðherra, dómsmálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra eru einhuga um að vinna saman að aðgerðum gegn ofbeldi í íslensku samfélagi og niðurbrjótandi áhrifum þess, auka fræðslu og forvarnastarf um ofbeldi, bæta samvinnu og verklag við að draga úr ofbeldi og styrkja samstarf við rannsókn ofbeldismála. Munu ráðherrarnir undirrita samstarfsyfirlýsingu um þetta við fyrsta tækifæri. Í samstarfsyfirlýsingunni er m.a. fjallað um samráð um þessi mál með aðkomu Barnaverndarstofu, Barnahúss, ríkissaksóknara og ríkislögreglustjóra með það að markmiði að tryggja samhæfða framkvæmd stjórnvalda á þessu sviði.
2. Hefur ráðherra gert samning sem skýrir skyldur Landspítala um framkvæmd læknisskoðana í Barnahúsi og verkaskiptingu við Neyðarmóttöku vegna nauðgana eins og samráðshópurinn lagði til í 6. tillögu samráðshópsins? Er gerð tillaga um fullnægjandi fjárveitingu í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2015?
Barnaverndarstofa og Landspítali hafa ekki gert formlegan samning um þessa þjónustu. Hins vegar framkvæma sérfræðilæknar á kvenna- og barnasviði, þ.e. barnalæknar og kvensjúkdómalæknar, skoðanir í Barnahúsi. Ef um mjög bráð mál er að ræða eða verulega áverka þá fer skoðun fram á Barnaspítalanum og/eða skurðstofu.
3. Hefur Landspítali fengið fjármagn og ráðið sálfræðing á geðsvið til að veita fullorðnum brotaþolum kynferðisofbeldis meðferð við áfallastreituröskun og þunglyndi, eins og lagt er til í 7. tillögu hópsins?
Ekki hefur verið skilgreint sérstakt fjármagn til að standa straum af stöðu sálfræðings eins og lagt er til í tillögu nr. 7 og hefur slíkur ekki verið ráðinn.
4. Hefur í samræmi við 9. tillögu samráðshópsins verið tryggð fjármögnun, framhald og útvíkkun vinnu við vitundarvakningu gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum í samræmi við ákvæði samnings Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misnotkun á börnum? Hefur ráðherra tryggt að þessi vitundarvakning verði fest í sessi til frambúðar í þeim anda sem UNICEF og fleiri aðilar hafa lagt til, svo sem með ofbeldisvarnaráði? Hefur verið skipuð verkefnisstjórn og verkefnisstjóri?
Vitundarvakningin er enn starfandi með verkefnisstjórn með fulltrúum innanríkisráðuneytis, velferðarráðuneytis og mennta- og menningarmálaráðuneytis og er verkefnisstjóri með aðsetur í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Fjármagn til starfsemi Vitundarvakningarinnar á árinu 2015 hefur verið tryggt með 9 millj. kr. framlagi frá framangreindum ráðuneytum.
5. Hefur verið stofnaður rannsóknarsjóður sem nýta má til mats á forvarnaverkefnum eða frekari rannsókna á umfangi og eðli ofbeldis, þ.m.t. kynferðisofbeldis, vanrækslu, heimilisofbeldis og kláms, sbr. 11. tillögu hópsins? Ef svo er, hefur fjármagn verið tryggt í slíkan sjóð?
Ekki hefur verið stofnaður sérstakur rannsóknarsjóður til að meta forvarnaverkefni eða til frekari rannsókna á þessu sviði.
6. Hefur ráðherra í samráði við ráðherra þeirra ráðuneyta sem mynduðu samráðshópinn gert tillögur vegna fræðslu um heimilisofbeldi, lagt á þær kostnaðarmat og gert tillögur til að tryggja þeim nægt fjármagn í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2015, sbr. 12. tillögu hópsins?
Í velferðarráðuneyti er unnið að fjölskyldustefnu í samstarfi við innanríkisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands. Við mótun stefnunnar hefur sjónarhornið verið á börn og réttindi þeirra. Vinnan er langt komin og í drögum eru settar fram aðgerðir til að koma í veg fyrir ofbeldi gegn börnum, þar með talið heimilisofbeldi, og lagðar fram tillögur að fræðslu um áhættuþætti, einkenni og úrræði.
7. Hefur ráðherra í samráði við mennta- og menningarmálaráðherra skipulagt og ráðist í fræðslu um klám og kynheilbrigði, sbr. 13. tillögu hópsins? Ef svo er, liggur fyrir kostnaðarmat og áætlun um fjármögnun?
Einn af grunnþáttum í menntun er heilbrigði og velferð, eins og fram kemur í aðalnámskrá grunnskóla 2011. Leiðbeiningar hafa verið gefnar út fyrir kennara um hvernig þeir geta sinnt þessum þætti en hluti af heilbrigði er kynheilbrigði.
Í verkefninu „Heilsueflandi grunnskóli“ er sérstaklega fjallað um mikilvægi þess að ungt fólk temji sér gagnrýna hugsun um kynheilbrigði og samskipti og að skóli og foreldrar eigi í góðu samstarfi um kynfræðslu. Um þetta er fjallað í útgefnu efni embættis landlæknis um verkefnið. Í verkefninu „Heilsueflandi framhaldsskólar“ verður áhersla næsta árs á lífsstíl og er kynheilbrigði ungs fólks einn af grunnþáttum sem fjallað er um.
Í verkefninu Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum er fjallað um kynheilbrigði og má þar meðal annars vísa í myndirnar „Fáðu Já“ og „Stattu með þér“.
Á vef embættis landlæknis er fræðsluefni sem meðal annars hefur verið notað í verkefninu „Tölum saman“ sem er fræðsla sérfræðinga um kynlíf ungmenna fyrir foreldra og unglinga í grunnskólum. Einnig er Námsgagnastofnun með mikið fræðsluefni á sínum vef.
Námsefnið „Örugg saman“ sem hefur sýnt góðan árangur í að draga úr ofbeldi, sérstaklega í nánum samskiptum, er nú að koma út hjá embætti landlæknis og er bæði um að ræða kennarahandbók og nemendahefti. Efni af þessum toga sem er ætlað unglingum er ein af þeim leiðum sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir með í forvörnum gegn ofbeldi í samskiptum.
Ekki hefur verið metinn kostnaður af heildstæðri áætlun á þessu sviði.
8. Hefur ráðherra í samráði við félags- og húsnæðismálaráðherra gert tillögu um fjárveitingu í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2015 til að efla félagasamtök sem sinna þolendum kynferðisofbeldis, sbr. 15. tillögu hópsins?
Í fjárlögum fyrir árið 2014 var 5 millj. kr. ráðstafað til þriggja félagasamtaka sem veita þolendum kynferðisofbeldis aðstoð og fræðslu. Styrki fengu Drekaslóð, Aflið og Sólstafir. Ekki er gert ráð fyrir sérstöku framlagi vegna þessa í fjárlögum fyrir árið 2015. Stígamót og Kvennaathvarf fá á hinn bóginn árleg framlög úr ríkissjóði til að sinna þolendum kynferðisofbeldis. Hefur framlag til Stígamóta verið aukið með það að markmiði að styðja við fatlaða einstaklinga sem hafa verið beittir kynferðisofbeldi og karla sem eru fórnarlömb kynferðisofbeldis. Þá verður horft sérstaklega til umsókna frá félagasamtökum sem sinna þolendum kynferðisofbeldis við meðferð umsókna um styrki til félagasamtaka sem úthlutað verður eigi síðar en í lok janúar 2015. Þá verður á þessu ári gerður sérstakur samningur við Kvennaathvarfið um að veita fórnarlömbum og meintum fórnarlömbum mansals þjónustu.
9. Hversu hárri fjárhæð er áætlað að ráðstafa til framangreindra verkefna á þessu ári og á því næsta samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2015?
Á árinu 2014 var 105 millj. kr. ráðstafað til kaupa á nýju Barnahúsi og til breytinga á því. Þá voru Barnaverndarstofu veittar 20 millj. kr. á þessu ári til að sinna rannsóknarviðtölum, greiningu og meðferð í nýju Barnahúsi. Tveir nýir starfsmenn voru ráðnir og er gert ráð fyrir að þessir fjármunir verði varanlegir í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2015. Í svari við 4. tölul. hér að framan er greint frá framlögum til Vitundarvakningarinnar 2015.