Ferill 215. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 463 — 215. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Þórunni Egilsdóttur um umferðareftirlit.
1. Er hafin eða mun hefjast vinna innan ráðuneytisins við að sameina umferðareftirlit Samgöngustofu lögreglunni eins og lagt er til í bókun 1 í tillögum þingmannanefndar um skiptingu viðbótarfjármagns til löggæslu 2014?
Í bókun við tillögur þingmannanefndar um skiptingu viðbótarfjármagns til löggæslu 2014 mælti þingmannanefndin með því við innanríkisráðherra að undirbúningur yrði hafinn við að sameina verkefni umferðareftirlits Samgöngustofu og lögreglu. Stýrihópur var stofnaður innan ráðuneytisins í júní 2014 til að leggja mat á kosti og galla þess að flytja eftirlitið og koma fram með tillögur að slíkum flutningi. Hópnum var falið að meta kosti og galla þess að flytja umferðareftirlit Samgöngustofu til lögreglu og skila um það áfangaskýrslu, sem yrði grundvöllur fyrir ákvörðun ráðherra um hvort flutningur eigi að fara fram eða ekki. Hópurinn hefur nú skilað áfangaskýrslu til ráðherra en ekki hefur verið tekin afstaða til skýrslunnar.
2. Hvenær er áætlað að niðurstöður liggi fyrir og framkvæmd hefjist, ef af verður?
Eftir að ráðherra hefur tekið afstöðu til áfangaskýrslu nefndarinnar munu upplýsingar um áframhald málsins liggja fyrir, m.a. hvenær endanlegar niðurstöður munu liggja fyrir og framkvæmdir hefjast.
Rétt er þó að ítreka að ráðherra telur því ekkert til fyrirstöðu að færa umferðareftirlitið til lögreglu verði sýnt fram á að það reynist bæði hagkvæm og um leið árangursrík lausn. Horfa má til þess að með slíku fyrirkomulagi mætti auka sýnilega löggæslu á þjóðvegum landsins sem er í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um eflingu löggæslunnar.