Ferill 315. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 476 — 315. mál.
Svar
forseta Alþingis við fyrirspurn frá Birgittu Jónsdóttur
um varðveislu gagna sem tengjast stjórnlagaráði.
1. Hvernig er háttað varðveislu gagna og heimilda sem urðu til í aðdraganda að störfum stjórnlagaráðs, við störf ráðsins og í kjölfar þess?
Þau gögn sem varða endurskoðun stjórnarskrárinnar á árunum 2009–2013 eru að verulegu leyti á rafrænu formi.
Þar er fyrst að nefna að gögn er varða ákvörðun Alþingis á 138. löggjafarþingi (2009– 2010) um að standa að endurskoðun stjórnarskrárinnar er að finna á vef Alþingis undir hlutaðeigandi þingmáli. 1 Gögn sem varða störf þjóðfundar, sem haldinn var 6. nóvember 2010, er að finna á vef þjóðfundarins. 2 Gögn er varða störf stjórnlagaráðs, er starfaði frá 6. apríl til 27. júlí 2011, eru á vef stjórnlagaráðs. 3 Eftir að stjórnlagaráð lauk störfum komu þeir einstaklingar, er skipuðu ráðið, saman til sérstaks fundar að ósk stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis dagana 8.–11. mars 2012 til að svara tilteknum spurningum sem þingnefndin beindi til þeirra. Gögn þess fundar er að finna á vef Alþingis undir þingmálinu „Skýrsla forsætisnefndar um tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá Íslands“, 3. mál 140. þings 2011–2012. 4 Með því þingmáli er jafnframt að finna erindi og umsagnir er varða umfjöllun Alþingis um þingmálið. Í skýrslu forsætisnefndar eru jafnframt prentuð sem fylgiskjöl bréf sem varða skipun stjórnlagaráðs.
Þeir þrír vefir sem nefndir eru, og varðveita gögn er tengjast umfjöllun og vinnu við endurskoðun stjórnarskrárinnar 2009–2013, eru aðgengilegir almenningi á netinu. Vefur stjórnlagaráðs og þjóðfundar eru hýstir utan Alþingis en skrifstofa Alþingis hefur til athugunar að hýsa báða vefina til frambúðar á vefsvæði Alþingis þar sem slíkt mundi draga úr kostnaði við hýsingu gagnanna.
Til viðbótar rafrænum gögnum eru í skjalasafni Alþingis varðveitt gögn er tengjast málinu. Eru það 18 öskjur með pappírsgögnum frá þjóðfundi, stjórnlaganefnd, stjórnlagaráði og undirbúningsnefnd stjórnlagaþings (síðar stjórnlagaráðs). Í þessum gögnum er m.a. að finna fundargerðir stjórnlaganefndar og undirbúningsnefndar, vinnugögn frá þjóðfundi, gögn frá fundum stjórnlagaráðs og vinnunefnda ráðsins auk gagnasafns stjórnlagaráðs. Þessi gögn skarast að stórum hluta við þau gögn sem er að finna á vef stjórnlagaráðs og þjóðfundar. Þá eru gögn, er varða fjármál þjóðfundar, stjórnlaganefndar og stjórnlagaráðs, varðveitt í bókhaldi skrifstofu Alþingis.
2. Hver ber ábyrgð á varðveislunni og hvaða gögn og heimildir eru varðveitt?
Samkvæmt lögum nr. 20/2002, um skylduskil til safna, skal Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn varðveita verk sem birtast á rafrænu formi á veraldarvefnum. Er þá átt við vefsíður og önnur gögn sem birt eru eða gerð aðgengileg almenningi á íslenska hluta veraldarvefsins, þ.e. þjóðarléninu is. Reglulega eru tekin afrit af þeim vefjum sem tilgreindir eru í 1. tölul. og þeir varðveittir á vefsafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. 5
Skrifstofa Alþingis hefur umsjón með varðveislu gagna á pappírsformi. Enn er unnið að endurskoðun stjórnarskrárinnar og því hefur skrifstofa Alþingis jafnframt séð um að vefir þjóðfundar og stjórnlagaráðs séu aðgengilegir á netinu og hefur aðgangur almennings að þeim ekki verið bundinn við aðgang að vefsafni Landsbókasafnsins.
3. Er ráðgert að almenningur hafi aðgang að þessum gögnum og heimildum?
Almenningur hefur nú sem fyrr aðgang að gögnum er varða endurskoðun stjórnarskrárinnar 2010–2013, þ.e. gögnum þjóðfundar, stjórnlagaráðs og þeim gögnum er urðu til við meðferð stjórnarskrármálsins á Alþingi. Þar sem langflest þessara gagna eru á rafrænu formi er almenningi með auðveldum hætti tryggður greiður aðgangur að gögnunum.