Ferill 190. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 493  —  190. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Birgi Ármannssyni
um ráðningar starfsmanna forsætisráðuneytisins.

    
    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða aðstoðarmenn, ráðgjafar eða starfsmenn í sérverkefnum, í fullu starfi eða hlutastarfi, voru ráðnir til starfa í forsætisráðuneytinu frá 1. febrúar 2009 til 31. maí 2013 án þess að störfin væru auglýst? Óskað er eftir upplýsingum um nöfn starfsmanna, verkefni sem þeir voru ráðnir til að sinna og lengd ráðningartíma.

    Aðstoðarmenn ráðherra og ríkisstjórnar eru ráðnir samkvæmt heimild í 22. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands. Samkvæmt 2. mgr. ákvæðisins heyra aðstoðarmenn beint undir ráðherra og er meginhlutverk þeirra að vinna að stefnumótun á málefnasviði ráðuneytis undir yfirstjórn ráðherra og í samvinnu við ráðuneytisstjóra. Þá kemur fram í lokamálslið 1. mgr. ákvæðisins að aðstoðarmenn gegni störfum fyrir ráðherra svo lengi sem ráðherra ákveður, þó ekki lengur en ráðherra sjálfur.
    Eftirtaldir fjórir aðstoðarmenn voru ráðnir sem aðstoðarmenn forsætisráðherra og/eða ríkisstjórnarinnar á tímabilinu sem spurt er um, frá 1. febrúar 2009 til og með 31. maí 2013:
    –        Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, tímabilið 1. febrúar 2009 til 23. maí 2013.
    –        Jóhann Hauksson, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, tímabilið 25. janúar 2012 til 23. maí 2013.
    –        Ágúst Ólafur Ágústsson, efnahags- og atvinnuráðgjafi, tímabilið 1. nóvember 2012 til 23. maí 2013.
    –        Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður núverandi forsætisráðherra, var ráðinn frá 23. maí 2013.
    Tveir starfsmenn voru ráðnir í sérverkefni til forsætisráðuneytisins á framangreindu tímabili:
    –        Guðmundur Árnason verkefnastjóri til að fylgja eftir ákvörðunum og aðgerðum ríkisstjórnarinnar í kjölfar hruns á fjármálamarkaði, tímabilið 15. janúar 2009 til 30. apríl 2009, en sama tímabil var hann í leyfi frá embætti sínu sem ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu.
    –        Einar Karl Haraldsson upplýsingafulltrúi, tímabilið 19. ágúst 2009 til 28. febrúar 2010, en áður hafði hann verið aðstoðarmaður iðnaðarráðherra.