Ferill 386. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 518  —  386. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um fulltrúa í starfshópum
og nefndum á vegum ráðuneytisins og stofnana þess.

Frá Jóni Þór Ólafssyni.


     1.      Í hvaða hópum, nefndum og öðrum sambærilegum samráðsvettvangi á vegum ráðuneytisins og stofnana þess sitja fulltrúar:
              a.      frjálsra félagasamtaka á neytendasviði á borð við Hagsmunasamtök heimilanna,
              b.      fjármálafyrirtækja og samtaka þeirra á borð við Samtök fjármálafyrirtækja?
     2.      Hversu margir eru fulltrúarnir í hverju tilviki?


Skriflegt svar óskast.