Ferill 283. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 546  —  283. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Birni Val Gíslasyni um flutning stofnana.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Er fyrirhugað að flytja höfuðstöðvar eða starfsstöðvar einhverra þeirra stofnana sem undir ráðuneytið heyra? Ef svo er, óskast greint frá því hvaða starfsemi á í hlut og hvaðan og hvert starfsemin verður flutt.

    Ekki er fyrirhugað að flytja höfuðstöðvar eða starfsstöðvar einhverra þeirra stofnana sem undir ráðuneytið heyra.