Ferill 267. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 549 — 267. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Álfheiði Ingadóttur um S-merkt lyf.
1. Hver var heildarkostnaður ríkisins við afgreiðslu S-merktra og leyfisskyldra lyfja á árinu 2013 og hver er áætlaður kostnaður á árinu 2014? Svar óskast sundurliðað eftir því hvort sjúklingar fá lyf til töku inni á sjúkrastofnun eða utan.
Á árinu 2013 var kostnaður vegna S-lyfja sem sjúkratryggingar greiddu 6.387.243.958 kr. Fjárlög fyrir árið 2014 gera ráð fyrir að kostnaðurinn verði 6.756.000.000 kr. og er ekki annað að sjá en það muni ganga eftir.
Langstærstur hluti þessara lyfja er gefinn í tengslum við Landspítala (LSH) en einnig er hluti frá Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk). Sá hluti sem kemur frá LSH skiptist þannig að árið 2013 voru 2.257.814.155 kr. (39%) vegna lyfjagjafa á LSH en 3.489.587.273 kr. (61%) út á lyfseðla. Kostnaður miðast hér við verð án álagningar en með VSK.
Fyrstu níu mánuði ársins 2014 var sambærileg skipting þannig að 1.818.648.613 kr. (41%) voru vegna lyfjagjafa en 2.605.920.173 kr. (59%) vegna lyfseðla.
2. Hversu margir sjúklingar fengu ávísað S-merktum lyfjum árið 2013? Svar óskast sundurliðað eftir:
a. aldri, kyni og sjúkdómum sjúklinga,
b. fjölda lífeyrisþega, öryrkja og barna með umönnunarkort,
c. fjölda þeirra sem voru inniliggjandi á sjúkrahúsum, líknardeildum og hjúkrunarheimilum, þeirra sem fengu lyfin á göngudeild og þeirra sem skyldu taka þau heima hjá sér, þ.e. utan heilbrigðisstofnunar.
Heildarfjöldi sjúklinga sem fengu S-merkt lyf frá LSH árið 2013 var 5.959.
Í eftirfarandi töflu og mynd sést aldurs- og kynjadreifing þessara einstaklinga:
| Aldur | Karlar | Konur |
| 0–4 | 122 | 70 |
| 5–9 | 78 | 50 |
| 10–14 | 78 | 87 |
| 15–19 | 126 | 116 |
| 20–24 | 183 | 155 |
| 25–29 | 162 | 120 |
| 30–34 | 179 | 158 |
| 35–39 | 182 | 171 |
| 40–44 | 206 | 169 |
| 45–49 | 211 | 265 |
| 50–54 | 254 | 248 |
| 55–59 | 259 | 286 |
| 60–64 | 235 | 291 |
| 65–69 | 260 | 238 |
| 70–74 | 214 | 203 |
| 75–79 | 173 | 157 |
| 80–84 | 135 | 130 |
| 85+ | 67 | 97 |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hafa ber í huga að þar sem einstaklingur getur færst milli aldursbila innan ársins er heildarfjöldinn í töflunni og á myndinni heldur hærri en samanlagður fjöldi einstaklinga.
Aðeins eru tiltæk gögn yfir hvaða lyf eru notuð en ekki við hvaða sjúkdómum. Mörg lyf eru notuð við fleiri en einum sjúkdómi og því er erfitt að gefa nákvæma skiptingu á milli sjúkdóma. Kostnaður Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) vegna S-lyfja er þó að langmestu leyti í flokki æxlishemjandi lyfja og lyfja til ónæmisbælingar (ATC-flokkur L).
3. Munu öll S-merkt lyf sem ávísað er til meðferðar utan stofnana falla undir greiðsluþátttökukerfið? Ef svo er ekki, hvaða lyf eða hvers konar lyf munu ekki falla undir greiðsluþátttökukerfið?
S-merkt og leyfisskyld lyf sem teljast sjúkrahúslyf verða áfram með sama fyrirkomulagi og áður. Þetta eru lyf sem eru á því formi að einstaklingur getur ekki tekið þau sjálfur án hjálpar. Ýmist eru lyfin gefin á göngudeild, sjúkrastofnun eða krefjast aðstoðar heilbrigðisstarfsmanns í heimahúsi. Læknir sendir umsókn um notkun lyfs til meðferðar á sjúklingi og Lyfjanefndin ákvarðar um meðferðina. Heimiluð meðferð lyfjanefndar jafngildir staðfestingu skilyrða fyrir notkun lyfsins. Þegar niðurstaða hefur fengist og meðferð er heimiluð er lyfið sótt í apótek LSH sem sér þá um dreifingu þess á landsvísu eins og verið hefur. Ríkið er þá eigandi og greiðandi lyfjanna með sama hætti og nú.
Öll leyfisskyld lyf eru einnig S-merkt í dag. Ýmist eru þau gefin út á lyfjaávísun eða ekki. Lyf geta verið í þeirri stöðu að vera leyfisskyld og eingöngu gefin á sjúkrahúsi/göngudeild, þ.e. ekki er gefin lyfjaávísun fyrir slík lyf. Lyf geta verið leyfisskyld og eingöngu er ávísað á lyfseðil. Lyf geta verið leyfisskyld og bæði ávísað á lyfseðil og gefin á göngudeild. Dæmi: Nokkur lyf hafa þá stöðu að bæði er hægt að ávísa þeim með lyfjaávísun sem og velja að gefa þau frekar á göngudeild og falla þannig utan almenna greiðsluþátttökukerfisins, t.d. BeneFIX, Gammanorm og MabThera. Lyf geta verið án leyfisskyldu og hægt að gefa bæði á lyfseðil og á göngudeild. Dæmi: Lyf sem eru aðeins S-merkt og ekki leyfisskyld, svo sem Aranesp, NeoRecromon, Mircera, Sandostain, en hægt að gefa bæði á göngudeild eða með lyfjaávísun. Skilgreina þarf tilvik sem þetta á við. Lyf geta verið eingöngu S-merkt og ýmist gefin á göngudeild eða ættu að vera á lyfjaávísun (sjá mat SÍ og LSH, í lyfjalista). Sama leyfisskylda lyfið getur haft þá stöðu að mismunandi lyfjaform þess hefur áhrif á hvort lyfið er gefið á sjúkrahúsi (ekki lyfjaávísun) eða einstaklingur tekur lyfið heima (lyfjaávísun). Hér að aftan er listi yfir þau leyfisskyldu lyf (niður á vnr.) sem hafa þá stöðu að vera leyfisskyld og eingöngu gefin á göngudeildum eða sjúkrahúsum. Sum þessara lyfja hafa farið í gegnum umsóknarferli vegna leyfisskyldu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Sóttvarnarlyf geta bæði verið innan kerfisins og utan. Það eru hins vegar sjúklingar sem haldnir eru tilkynningarskyldum smitsjúkdómi sem fá ákveðin lyf sér að kostnaðarlausu samkvæmt sóttvarnarlögum eins og á einnig við um sjúklinga með lokastigsnýrnabilun, alvarlegan geðsjúkdóm eða eru í líknandi meðferð.
4. Er áformað að breyta viðmiðunarreglu fyrir verðlagningu í heildsölustigi á þeim S-merktu lyfjum sem fara yfir í almennt greiðsluþátttökukerfi lyfja til samræmis við viðmiðunarreglu fyrir önnur lyfseðilsskyld lyf, sbr. 4. og 5. gr. reglugerðar nr. 353/2013 um lyfjagreiðslunefnd? Ef svo er, hvaða áhrif hefði slík breyting á smásöluverð lyfjanna að óbreyttu og þar með lyfjakostnað sjúkratryggðra og ríkisins?
Ekki er áformað að breyta verðlagningu á heildsöluverði þessara lyfja sem er lægsta verð á Norðurlöndum.
5. Hvaða kostnaðaráhrif er búist við að yfirfærsla S-merktra lyfja í almenna greiðsluþátttökukerfið muni hafa á útgjöld sjúkrahúsa vegna þeirra og annarra lyfja, svo sem vegna lyfjakostnaðar, birgðakostnaðar og umsýslu, sem og áhrif á stjórnsýslukostnað hjá öðrum opinberum aðilum?
Yfirfærsla S-merktra og leyfisskyldra lyfja hefur ekki áhrif á kostnað sjúkrahúsa þar sem kostnaðurinn fer áfram af fjárlagalið S-merktra lyfja sem samkvæmt samkomulagi milli SAk, LHS og SÍ um fyrirkomulag S-merktra lyfja er greiddur af SÍ. Þessi yfirfærsla ætti ekki að hafa áhrif á kostnað annarra lyfja á sjúkrahúsum.