Ferill 265. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 562 — 265. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Elsu Láru Arnardóttur
um framkvæmdir í Patreksfjarðarhöfn.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Stendur til að fara í aðgerðir til að bæta hafnaraðstöðu í Patreksfjarðarhöfn og ef svo er, hvernig er tímaáætlun þeirra framkvæmda?
Á árunum 2008–2013 voru veittar alls um 183,4 millj. kr., á verðlagi hvers árs, úr ríkissjóði í endurbyggingu á 310 metra langri bryggju í Patreksfjarðarhöfn. Í þingsályktunartillögu um samgönguáætlun fyrir árin 2013–2016, sem lögð var fram á 141. löggjafarþingi en ekki samþykkt, var ætlunin að veita 16,1 millj. kr. úr ríkissjóði til að styrkja grjótvörn við Oddann árið 2014 og 7,6 millj. kr. árið 2015 til byggingar 50 metra langrar flotbryggju. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um framhald málsins en áformað er að leggja fram tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fljótlega og ráðast tillögur hennar af því fjármagni sem verður til reiðu.