Ferill 401. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 572  —  401. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um athugun rekstrarfélags
Stjórnarráðsins á trúnaðarbroti í innanríkisráðuneytinu.

Frá Helga Hrafni Gunnarssyni.


     1.      Var það niðurstaða athugunar rekstrarfélags Stjórnarráðsins, sem vísað var til í fréttatilkynningu frá innanríkisráðuneytinu 12. janúar sl., að trúnaðargögn vegna máls hælisleitandans Tonys Omos hafi einungis farið til þeirra aðila sem samkvæmt lögum áttu rétt á þeim?
     2.      Var rekstrarfélaginu veittur aðgangur að öllum gögnum frá innanríkisráðuneytinu sem óskað var eftir vegna athugunarinnar?
     3.      Var rekstrarfélaginu veittur aðgangur að tölvupósthólfi yfirstjórnenda innanríkisráðuneytisins?
     4.      Skoðaði rekstrarfélagið hið svokallaða opna drif ráðuneytisins þar sem trúnaðargögnin reyndust einnig vistuð og ef svo er, fannst minnisblaðið?
     5.      Var niðurstaða rekstrarfélagsins algerlega í samræmi við það sem innanríkisráðuneytið lýsti í tilkynningu á vef sínum 12. janúar sl.?


Skriflegt svar óskast.