Ferill 317. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 579  —  317. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Össuri Skarphéðinssyni
um losun frá framræstu votlendi.


     1.      Hver er losun frá framræstu landi í skóglendi, ræktuðu landi og mólendi miðað við gildandi stuðla sem notaðir eru í opinberu losunarbókhaldi?
    Losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstu landi er metin út frá flatarmáli og stuðlum fyrir losun á hverja flatareiningu. Fyrir framræst land er um að ræða losun þriggja gróðurhúsalofttegunda, þ.e. koltvísýrings (CO 2), metans (CH 4) og hláturgass (N 2O). Koltvísýringur myndast við niðurbrot á lífrænu efni í jarðvegi, hláturgas myndast vegna niðurbrots köfnunarefnissambanda í jarðvegi og áburði og metangas myndast vegna baktería í súrefnissnauðum mýrum. Heildarlosunin er reiknuð út sem jafngildi CO 2-losunar þar sem losun metans og hláturgass er umreiknuð í CO 2-ígildi áður en losun þessara þriggja gróðurhúsalofttegunda er lögð saman.
    Umhverfisstofnun skilar á hverju ári skýrslu til loftslagssamningsins um loftslagsbókhald Íslands. Í skýrslu stofnunarinnar árið 2014 var gerð grein fyrir loftslagsbókhaldi ársins 2012.
    Árið 2012 nam losun úr framræstum jarðvegi í skóglendi 3,2 þúsund tonnum CO 2-ígilda. Á móti kom kolefnisbinding sem nam 15,4 þúsund tonnum CO 2-ígilda. Í heild varð því nettó kolefnisbinding á þessum svæðum sem nam 12,2 þúsund tonnum CO 2-ígilda.
    Losun frá framræstu ræktuðu landi nam 1,14 milljón tonnum CO 2-ígilda. Útstreymið var að langmestu leyti koltvísýringslosun og um 7% vegna losunar hláturgass.
    Losun frá framræstu mólendi nam 416 þúsund tonnum CO 2-ígilda, þar af var 80% vegna koltvísýrings og 20% vegna hláturgass. Kolefnisbinding vegna birkikjarrs og annars gróðurs nam 19 þúsund tonnum CO 2-ígilda. Nettólosun frá framræstu mólendi nam því 397 þúsund tonnum CO 2-ígilda árið 2012.
    Rétt er að geta þess að losunarbókhald loftslagssamningsins er ekki að öllu leyti hið sama og bókhaldið varðandi Kyoto-bókunina. Bókhald vegna samningsins nær yfir alla losun, en bókhald Kyoto tekur mið af skuldbindingum ríkja um minnkun nettólosunar. Þannig er losun frá framræstu landi t.d. ekki tekin inn í losun Íslands viðmiðunarárið 1990 sem grunnur til að reikna út Kyoto-skuldbindingar Íslands. Miklar breytingar sem hafa orðið á mati á losun hafa því ekki áhrif á tölulegar skuldbindingar Íslands en geta haft áhrif til lengri tíma á möguleika Íslands til að mæta þeim skuldbindingum.

     2.      Hver yrði losunin vegna framangreindra þátta á grundvelli nýrra stuðla eða innlendra rannsókna á losun frá framræstu landi?
    Árið 2013 gaf milliríkjanefndin um loftslagsbreytingar (IPCC, Intergovernmental Panel on Climate Change) út nýjar leiðbeiningar um losunarbókhald vegna votlendis, 2013 Supplement to the 2006 IPCC Guidelines for National Greenhouse Gas Inventories: Wetlands. Þessi vinna er tilkomin vegna þess að endurheimt votlendis er nú valkvæð mótvægisaðgerð í Kyoto-bókuninni, en Ísland lagði þá tillögu fyrst fram og vann henni síðan fylgis.
    Landbúnaðarháskóli Íslands hefur lagt mat á útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá framræstu votlendi miðað við leiðbeiningar IPCC og einnig hvernig því ber saman við innlendar mælingar.
    Í leiðbeiningum IPCC hafa losunarstuðlar verið endurmetnir og einnig hafa bæst við losunarstuðlar fyrir þætti sem ekki hefur verið hægt að meta áður. Losunarstuðlar fyrir koltvísýring og hláturgas hækka verulega með nýju leiðbeiningunum. Þannig hækkar t.d. stuðullinn fyrir CO 2-losun fyrir skóglendi úr 0,16 í 0,93, fyrir ræktað land úr 5 í 7,9 og fyrir mólendi úr 0,25 í 5,7 miðað við tonn af kolefni á hektara á ári. Þessar breytingar á losunarstuðlum, auk þátta sem áður voru ekki metnir, hafa því veruleg áhrif til hækkunar á mati á útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá framræstu landi án þess að umfang framræslunnar hafi breyst nokkuð.
    Mat á losun frá framræstu landi í skóglendi breytist þannig að miðað við nýju leiðbeiningarnar yrði losunin 3,6 þúsund tonn CO 2-ígilda í stað nettó bindingar sem nemur 12,2 þúsund CO 2-ígildum.
    Mat á losun frá framræstu ræktuðu landi hækkar úr 1,14 milljón tonnum CO 2-ígilda miðað við eldri stuðla í 2,16 milljón tonn CO 2-ígilda miðað við nýju leiðbeiningarnar.
    Mat á losun frá framræstu mólendi breytist mest, fer úr 397 þúsund tonnum CO 2-ígilda miðað við eldri stuðla í 9,47 milljón CO 2-ígilda miðað við nýju leiðbeiningarnar.
    Nákvæmara mat á útstreymi gróðurhúsalofttegunda fæst yfirleitt með notkun losunarstuðla sem byggjast á innlendum rannsóknum og miðast við sértækar aðstæður í hverju landi en með notkun stuðla úr almennum leiðbeiningum. Gerðar hafa verið nokkrar rannsóknir hérlendis þar sem lagt hefur verið mat á losun úr framræstu landi. Mælingum á koltvísýringi úr framræstu mólendi ber vel saman við þá stuðla sem mælt er með að notaðir séu í skýrslu IPCC. Mælingar á hláturgasi úr mólendi og ræktuðu landi benda hins vegar til umtalsvert minni losunar en stuðlar IPCC gefa tilefni til. Mat á metanlosun er nokkuð hærra miðað við innlendar mælingar en losunarstuðlar IPCC. Nú er unnið að skýrslugerð fyrir losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2013 og verður þá lagt mat á hvaða stuðlar teljist best lýsa losuninni frá framræstum svæðum.

     3.      Hvernig mundu tölur um heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi breytast við það?
    Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá Íslandi árið 2012, að meðtalinni losun vegna landnýtingar, var 5,17 milljón tonn CO 2-ígildi.
    Miðað við að breyta losunarstuðlum til samræmis við leiðbeiningar IPCC og meta aðeins þá þætti sem hingað til hafa verið metnir hækkar matið á heildarlosun frá Íslandi í 14,95 milljón tonn CO 2-ígildi eða sem svarar 289%. Ef einnig er tekið tillit til nýrra matsþátta hækkar matið í 15,28 milljón tonn CO 2-ígildi eða sem svarar 295%. Ef innlendar rannsóknir og losunarstuðlar eru notaðar og nýttir fyrir alla matsþætti hækkar mat á heildarlosun frá Íslandi í 13,22 milljón tonn CO 2-ígilda eða sem svarar 256%. Rétt er að ítreka að slíkt endurmat hefði ekki áhrif á skuldbindingar Íslands varðandi Kyoto-bókunina.

     4.      Hver væri þá heildarlosun frá brennslu jarðefnaeldsneytis, iðnaði og framræstu mólendi?
    Árið 2012 var losun vegna orkunotkunar 1,55 milljón tonn CO 2-ígildi og losun vegna iðnaðarferla var 1,88 milljón tonn CO 2-ígildi.
    Miðað við þá stuðla sem notaðir hafa verið var losunin frá framræstu mólendi 397 þúsund tonn CO 2-ígilda árið 2012. Ef miðað er við losunarstuðla í nýjum leiðbeiningum IPCC nemur þessi losun 9,47 milljón tonna CO 2-ígilda. Ef niðurstöður innlendra mælinga eru notaðar við að reikna út losunina nemur hún hins vegar 7,74 milljón tonna CO 2-ígilda.