Ferill 246. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 582 — 246. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Bjarkeyju Gunnarsdóttur
um áhrif fækkunar lögreglustjóra í Norðausturkjördæmi .
1. Hversu margir lögreglustjórar þiggja biðlaun vegna fækkunar lögreglustjóra í Norðausturkjördæmi samkvæmt lögum nr. 51/2014, um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/ 1996?
Enginn.
2. Hversu margir starfsmenn fyrri lögreglustjóraembætta fá ekki sambærilega vinnu og þeir voru í fyrir breytinguna?
Ný embætti lögreglustjóra og sýslumanna á Norðurlandi eystra og á Austurlandi munu taka til starfa 1. janúar nk. og er nú unnið að því að ráða í öll störf hjá embættunum. Niðurstaða í þeim efnum liggur ekki fyrir. Viðtakandi lögreglustjóri og sýslumaður á Norðurlandi eystra annars vegar og og á Austurlandi hins vegar vinna nú sameiginlega að því að ráða í störf hjá embættunum í samæmi við ákvæði til bráðabirgða við lög um breytingu á lögreglulögum, nr. 51/2014, þar sem miðað er við að starfsfólk sem starfar að verkefnum lögreglu njóti forgangs í starfi hjá nýjum embættum lögreglustjóra. Er leitast við að raska högum starfsfólks sem minnst og fá fram afstöðu starfsfólks núverandi embætta til þess hvort því hugnist að starfa við embætti lögreglustjóra eða sýslumanns. Verður reynt að koma til móts við óskir starfsmanna sé það mögulegt.
3. Hversu margir starfsmenn fyrri lögreglustjóraembætta hafa verið ráðnir til starfa á öðrum umsýslusviðum ráðuneytisins?
Eins og áður segir er vinnu við ráðningar í störf hjá lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra og á Austurlandi ekki lokið, sbr. 2. tölul. fyrirspurnarinnar.
4. Hversu há eru framlög á hvern íbúa Norðausturkjördæmis vegna lögreglustjóraembætta þar?
Umdæmi embætta lögreglustjóranna á Norðurlandi eystra og á Austurlandi munu ná yfir eftirgreind sveitarfélög: Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Hörgársveit, Akureyrarkaupstað, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhrepp, Grýtubakkahrepp, Þingeyjarsveit, Skútustaðahrepp, Norðurþing, Tjörneshrepp, Svalbarðshrepp, Langanesbyggð, Seyðisfjörð, Fjarðabyggð, Vopnafjarðarhrepp, Fljótsdalshrepp, Borgarfjarðarhrepp, Breiðdalshrepp, Djúpavogshrepp og Fljótsdalshérað. Samkvæmt upplýsingum af vef Hagstofu Íslands voru íbúar í þessum sveitarfélögum í upphafi ársins 39.448 talsins. Fjárheimildir til embættanna samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2015 eru 935,4 millj. kr. og fjárheimildir á hvern íbúa í umdæminu því 23.712 kr.
5. Hvaða forsendur liggja að baki áætlun um sértekjur upp á 12,7 millj. kr. hjá embætti lögreglustjórans á Austurlandi?
Áætlun um sértekjur ríkisaðila er byggð á rauntölum samkvæmt bókhaldi þeirra. Sértekjuáætlanir hafa verið endurskoðaðar á nokkurra ára fresti og komi í ljós mikill eða umtalsverður munur á áætlun fjárlaga og rauntekjum er gerð tillaga um aðlögun fjárlaga að rauntekjum og eru þá útgjaldaheimildir hækkaðar eða lækkaðar um sem tekjubreytingunni nemur. Ráðuneytinu er kunnugt um að tímabært er að endurskoða sértekjuáætlun þessa tiltekna embættis en hún byggist að hluta á áætlun embættis sýslumannsins á Seyðisfirði sem var síðast endurskoðuð þegar það embætti hafði umtalsverðar sértekjur vegna byggingar Kárahnúkavirkjunar.