Ferill 414. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 612 — 414. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um flutning höfuðstöðva Fiskistofu.
Frá Birgittu Jónsdóttur.
Telur ráðherra að hann þurfi lagaheimild til að flytja höfuðstöðvar Fiskistofu frá Hafnarfirði norður til Akureyrar og ef svo er, hvar er slíka heimild að finna í lögum?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.
Í bréfi ráðherra til starfsmanna Fiskistofu, dags. 10. september 2014, kemur fram að tekin hafi verið sú stefnumarkandi ákvörðun að flytja höfuðstöðvar stofnunarinnar til Akureyrar. Öll ytri skilyrði fyrir flutningi höfuðstöðva Fiskistofu til Akureyrar eru þau sömu og þegar þáverandi umhverfisráðherra, með minnisblaði 3. júlí 1996, kynnti starfsmönnum Landmælinga Íslands þá ákvörðun sína að flytja starfsemi Landmælinga upp á Akranes. Með dómi Hæstaréttar nr. 312/1998 var ákvörðun umhverfisráðherra um að flytja starfsemi Landmælinga upp á Akranes dæmd ólögmæt.