Ferill 442. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 674 — 442. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um fulltrúa í starfshópum og
nefndum á vegum ráðuneytisins og stofnana þess.
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
1. Í hvaða hópum, nefndum og öðrum sambærilegum samráðsvettvangi á vegum ráðuneytisins og stofnana þess sitja fulltrúar:
a. frjálsra félagasamtaka á neytendasviði á borð við Hagsmunasamtök heimilanna,
b. fjármálafyrirtækja og samtaka þeirra á borð við Samtök fjármálafyrirtækja?
2. Hversu margir eru fulltrúarnir í hverju tilviki?
Skriflegt svar óskast.