Ferill 446. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 678  —  446. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um vopnaeign og vopnaburð lögreglunnar.

Frá Katrínu Jakobsdóttur.


     1.      Hve mörg skotvopn eru samtals í eigu lögreglunnar og hvernig skiptast þau skotvopn eftir gerðum og stærðum (skammbyssur, rifflar, haglabyssur, sjálfvirk skotvopn o.þ.h.) og lögregluembættum? Upplýsingar óskast um fjölda hverrar gerðar um sig hjá hverju lögregluembætti og lögregludeildum, svo sem sérsveit lögreglunnar.
     2.      Hve margra skotvopna og hvaða skotvopna hefur verið aflað á undanförnum áratug að árinu 2014 meðtöldu? Í svarinu óskast fjöldi skotvopna tilgreindur fyrir hvert og eitt ár.
     3.      Hvert er upprunaland þeirra skotvopna sem aflað hefur verið á undanförnum áratug? Í svarinu óskast tilgreint hversu mörg skotvopn bárust frá hverju landi um sig og hverrar gerðar þau voru.
     4.      Hversu mörg þeirra skotvopna sem lögregla hefur aflað sér á undanförnum áratug hafa verið keypt og hvert var verð þeirra og hversu mörg þegin að gjöf og hvert var verðmæti þeirra? Í svarinu óskast tilgreindur fjöldi, verð, gerð og upprunaland skotvopnanna?
     5.      Hvaða aðili, innan lögreglu eða utan, leggur mat á þörf lögreglu fyrir skotvopn?
     6.      Í hve mörgum lögreglubifreiðum eru geymd skotvopn? Óskað er upplýsinga um fjölda og gerð skotvopna og undir hvaða lögregluembætti viðkomandi lögreglubifreiðar heyra.
     7.      Í hve mörgum lögreglustöðvum eru geymd skotvopn? Óskað er upplýsinga um fjölda og gerð skotvopnanna og undir hvaða lögregluembætti viðkomandi lögreglustöðvar heyra.
     8.      Hafa almennir lögreglumenn hlotið sérstaka þjálfun í beitingu sjálfvirkra skotvopna? Ef svo er, hver annast þessa þjálfun, hversu langan tíma tekur hún og hvernig er henni háttað í aðalatriðum?
     9.      Hvaða hæfnisskilyrði þurfa almennir lögreglumenn að uppfylla til að hafa heimild til að beita skotvopnum við störf sín, greint eftir gerð skotvopna?
     10.      Hvernig hefur fjöldi sjálfvirkra skotvopna í eigu lögreglunnar þróast frá útgáfu skýrslu innanríkisráðuneytisins um stöðu lögreglunnar árið 2012? Upplýsingar óskast um fjölda sjálfvirkra skotvopna í eigu lögreglu á árunum 2012–2014 og skiptingu þeirra milli lögregluembætta á þessum árum.
     11.      Hvaða stefnu er fylgt í ákvarðanatöku um vistun og varðveislu skotvopna við lögregluembætti landsins?
     12.      Er við ákvörðun um það hvar skotvopn lögreglu skuli vistuð fylgt niðurstöðum þarfagreiningar, áhættumats eða annars formlegs mats á þörf fyrir slík vopn?
     13.      Með hvaða hætti er skotvopnum lögreglu fargað? Er í gildi verklagsáætlun um þetta eða önnur fyrirmæli og er haldin skrá um förguð skotvopn þannig að afdrif þeirra séu ljós?


Skriflegt svar óskast.