Ferill 452. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 689 — 452. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um upplýsingar um loftmengun.
Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.
1. Hefur almannavarnahlutverk Ríkisútvarpsins við miðlun upplýsinga um áhrif gosmengunar á loftgæði verið skilgreint?
2. Hvaða viðmiðunum er fylgt þegar sendar eru út tilkynningar í smáskilaboðum frá almannavörnum um brennisteinsdíoxíðmengun?
3. Er niðurstöðum mælinga á loftgæðum safnað skipulega frá öllum mælum sem settir hafa verið upp á landinu síðustu vikur? Ef svo er, eru niðurstöður mælinganna aðgengilegar almenningi og hvar þá?
4. Kemur til greina að þeir sem eru viðkvæmir í lungum, svo sem astmasjúklingar, gætu óskað sérstaklega eftir því að fá tilkynningar í smáskilaboðum þegar mengun frá eldgosum eða af öðrum orsökum fer yfir tiltekin mörk? Kemur til greina að aðrir sem óskuðu þess fengju slíkar tilkynningar?
Skriflegt svar óskast.