Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 767  —  1. mál.

3. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2015.

Frá 1. minni hluta fjárlaganefndar.


    Fyrir 2. umræðu lagði stjórnarandstaðan sameiginlega fram breytingartillögur til að sníða af helstu vankanta frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2015. Skemmst er frá því að segja að ekki var tekið í útrétta sáttahönd stjórnarandstöðunnar.
    Ef fallist hefði verið á tillögur stjórnarandstöðunnar hefði mátt koma í veg fyrir að sjúklingar greiði 1,9 milljarða kr. í gjöld árið 2015 fyrir heilbrigðisþjónustu og 25 ára og eldri hefði verið áfram tryggt aðgengi að bóknámi framhaldsskóla. Stjórnarmeirihlutinn heldur fast í fyrri áform og gerir þessar breytingar á grunnstoðum samfélagsins án þess að nein stefnumarkandi umræða fari fram.
    Algjört lágmark hefði verið að samþykkja tillögur stjórnarandstöðunnar um að veita fjármuni til viðhalds á Landspítalanum og standa vörð um réttindi launafólks. Landspítalinn lekur og liggur undir skemmdum vegna myglu og maura. Ríkisstjórnin ætlar einhliða að skerða bótatímabil sem atvinnulausir eiga rétt á úr þremur árum í tvö og hálft ár sem mun bitna á mörg hundruð atvinnuleitendum. Samkomulag um starfsendurhæfingu er rofið með því að skerða fjárframlög til VIRK og um jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða sem mun leiða til þess að lífeyrir skerðist hjá verkafólki og sjómönnum á næsta ári. Með þessum aðgerðum er þríhliða samkomulag ríkisstjórnar, verkalýðsfélaga og atvinnurekenda, sem alltaf áður hefur verið hægt að treysta á í íslensku samfélagi, sett í uppnám og mun hafa áhrif á kjaraviðræður sem framundan eru til hins verra.
    Ríkisstjórnin nær ekki að skapa sátt, hvorki í stóru né smáu og elur á sundrungu. Hún gengur gegn skýrri ályktun stjórnar RÚV um að útvarpsgjald lækki ekki heldur verði 19.400 kr. áfram á árinu 2015. Athygli vekur að meiri hluti stjórnarinnar er skipaður af ríkisstjórnarflokkunum og stjórnin er sammála í ályktun sinni. Tillaga í takt við áherslur stjórnar RÚV var lögð fram af stjórnarandstöðunni við 2. umræðu en stjórnarmeirihlutinn felldi hana.
    Ríkisstjórninni var tíðrætt í allt haust um mótvægisaðgerðir vegna hækkunar matarskattsins sem hefur líka áhrif á menningartengda starfsemi en hafnar tillögu stjórnarandstöðunnar um 50 millj. kr. viðbótarframlag til Bókasafnssjóðs höfunda, myndlista- og tónlistarsjóðs. Standa á við áform um að skera niður framlag vegna þjónustu við þolendur kynferðisofbeldis þrátt fyrir að ítrekað hafi komið fram að málafjöldi sé mikill og niðurskurðurinn muni hafa neikvæð áhrif. Staðið er við lækkun á framlögum til öryrkja og eldri borgara sem gerð var tillaga um á milli 1. og 2. umræðu.
    Samkvæmt breytingartillögum meiri hluta fjárlaganefndar verður heildarjöfnuður á árinu 2015 aðeins 3,6 milljarðar kr. Breytingarnar má sjá í eftirfarandi töflu (fjárhæðir í milljörðum króna):

Fjárlagafrumvarp Breytingartillaga við 2. umræðu Breytingartillaga við 3. umræðu Samtals
Frumtekjur 626,3 9,5 -0,4 635,5
Frumgjöld 556,3 11,0 0,3 567,6
Frumjöfnuður 70,1 -1,5 -0,7 67,9
Vaxtatekjur 18,2 0,0 0,0 18,2
Vaxtagjöld 84,2 -1,7 0,0 82,5
Vaxtajöfnuður -66,0 1,7 -0,0 -64,3
Heildartekjur 644,5 9,5 -0,4 653,7
Heildargjöld 640,5 9,3 0,3 650,1
Heildarjöfnuður 4,1 0,2 -0,7 3,6

    Minni hluti fjárlaganefndar gerir enn tilraun til að slípa af helstu galla fjárlagafrumvarpsins og leggur fram breytingartillögur um framlag til reksturs heilbrigðiskerfisins fyrir sykurgjald og að RÚV fái hálfs árs aðlögun að breyttu rekstrarumhverfi sem lækkun útvarpsgjalds kallar á. Einnig eru fluttar tillögur um framlag til að flýta málum þolenda kynferðisofbeldis, til framkvæmda við Helguvíkurhöfn í Reykjanesbæ og til að fylgja eftir þingsályktunum um stafræna íslensku og um upplýsinga- og tjáningarfrelsi.

Svik og skerðing réttinda atvinnuleitenda.
    Alvarleg staða er komin upp á vinnumarkaði ef tillaga ríkisstjórnarinnar nær fram að ganga um að skerða réttindi langtímaatvinnulausra með styttri bótatíma ásamt því að skerða framlag til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða og til VIRK. Miðstjórn ASÍ hefur með yfirlýsingum sínum sagt að þessar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar verði til þess að félagsmenn þurfi að búa sig undir átök á vinnumarkaði. Samtök atvinnulífsins hafa tekið undir með ASÍ og sagt að aldrei fyrr hafi stjórnvöld rofið einhliða samkomulag sem gert hefur verið við verkalýðsfélög og samtök atvinnurekenda. Tillaga minni hlutans um að staðið yrði við samkomulagið var felld af stjórnarmeirihlutanum við 2. umræðu.
    Skerðing bótatímans hefur áhrif á mörg hundruð einstaklinga strax um áramótin. Sumir missa bætur með öllu þar sem fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna miðast t.d. við að ef maki er með tekjur fær viðkomandi enga aðstoð. Aðrir fá aðstoð frá sveitarfélögunum en fjárhæðin er í öllum tilfellum lægri en atvinnuleysisbæturnar. Augljóst er að þessi ákvörðun mun auka líkur á fátækt hjá þessum hópi. Athygli er vakin á því að með þessari harkalegu aðgerð gagnvart langtímaatvinnulausum ætlar ríkisstjórnin að spara sér milljarð króna á sama tíma og hún leggur til afnám auðlegðarskatts upp á um 10 milljarða kr.

Heilbrigðiskerfið.
    Minni hlutinn gerir aðra tilraun til að bæta stöðu heilbrigðismála með flutningi breytingartillagna við 3. umræðu. Lagt er til að sykurgjald skili 3 milljörðum kr. í tekjur og þeim verði varið til styrkingar á heilbrigðiskerfinu. Lagt er til að fallið verði frá því að S-merktu lyfin fari inn í greiðslukerfið með öðrum lyfjum með 145 millj. kr. kostnaði sem sjúklingar hefðu greitt og að átak verði gert í geðheilbrigðismálum. Spítölum, heilsugæslum og heilbrigðisstofnunum verði gert kleift að vinna úr þeim kostnaði og lengingu biðlista sem kjaradeilan við lækna mun valda. Einnig er lagt til að aukið fjármagn verði veitt í viðhald á Landspítalanum enda heldur húsnæðið ekki vatni og er sums staðar heilsuspillandi. 1. minni hluti hefur miklar áhyggjur af þeirri alvarlegu stöðu sem heilbrigðiskerfið er í og undrast ráðaleysi stjórnvalda hvað það varðar. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa lagt til að sáttanefnd verði sett á laggirnar til að freista þess að leysa deiluna við lækna en á það hlustar ríkisstjórnin ekki. Vandinn vex á meðan að ríkisstjórnin ræður ekki við lausn málsins.

Ríkisútvarpið.
    Á fund fjárlaganefndar komu stjórnendur og stjórnarmenn RÚV og fóru yfir stöðu stofnunarinnar. Ríkisútvarpið hefur víðtæku hlutverki að gegna samkvæmt lögum: menningarhlutverki, lýðræðishlutverki, öryggishlutverki og því að halda úti fjölbreyttri dagskrá og dreifa henni örugglega til landsmanna. Á fundinum voru fulltrúar RÚV á einu máli um að áætlanir í fjárlagafrumvarpinu og fyrirhugaðar lækkanir á útvarpsgjaldi, á árinu 2015 í 17.800 kr. og í 16.800 kr. á árinu 2016, mundu hafa afgerandi áhrif á dagskrá og útsendingartíma og óvíst væri hvort stofnunin gæti sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Því yrði að breyta þeim fyrirætlunum og halda útvarpsgjaldinu óbreyttu sem er nú 19.400 kr. Minni hlutinn lagði fram slíka tillögu við 2. umræðu en stjórnarmeirihlutinn felldi hana. Því mun minni hlutinn gera aðra tilraun nú með tillögu um að útvarpsgjaldið verði 18.600 kr. á árinu 2015. Þannig væri komið til móts við óskir stjórnarmeirihlutans um lækkun gjaldsins og til móts við stjórn RÚV um að gjaldið lækkaði ekki niður í 17.800 kr. Ljóst er að ef ekkert verður að gert hefur stjórnarmeirihlutinn komið Ríkisútvarpinu á kaldan klakann.

Isavia.
    Á fund fjárlaganefndar komu framkvæmdastjóri og formaður stjórnar Isavia ásamt fulltrúum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Tilefnið var tillaga meiri hluta fjárlaganefndar um að Isavia skilaði 700 millj. kr. arði í ríkissjóð á árinu 2015. Í máli stjórnenda Isavia kom skýrt fram að félagið sé ekki fært um að greiða arð í ríkissjóð enda standi fyrir dyrum fjárfestingar á Keflavíkurflugvelli fyrir um 40 milljarða kr. á næstu 7–10 árum. Hins vegar fögnuðu þeir þeirri ákvörðun meiri hluta fjárlaganefndar að leggja til 500 millj. kr. framlag til viðhalds á flugvöllum úti um landið. Áhersla var lögð á að halda þessum tveimur málum aðskildum og vegna ört vaxandi ferðamannastraums til landsins yrði að framkvæma og verja fjármagni bæði til viðhalds og uppbyggingar úti um land en einnig á Keflavíkurflugvelli. Ef félagið ætti að greiða arð þýddi það einfaldlega að lán yrði tekið fyrir framkvæmdum með tilheyrandi vaxtakostnaði. 1. minni hluti vill taka það fram að ekkert kostnaðarmat er til á frestun á viðhaldi flugbrautanna á Keflavíkurflugvelli en fram hefur komið að þar eru dýrustu flugbrautir landsins og að þær liggi nánast undir skemmdum. Þegar herinn annaðist viðhaldið á brautunum var varið um 1 milljarði kr. til þess ár hvert.
    Fyrsti minni hluti telur mikilvægt að 6. gr. heimild í fjárlagafrumvarpinu um eignfærslu á flugbrautum á Keflavíkurflugvelli verði skoðuð í því ljósi að bent var á af forsvarsmönnum Isavia að við það að færa flugbrautir á Keflavíkurflugvelli undir Isavia vex eigið fé fyrirtækisins um 7%, fyrirtækið fær hagstæðara lán og betra söluverð fengist fyrir félagið ef til sölu á því kæmi. Varað er við því að skref verði stigin sem leitt gætu til sölu Isavia og þar með sölu á flugbrautunum á Keflavíkurflugvelli gangi eignfærslan eftir samkvæmt heimild í 6. gr. frumvarpsins.

Ný Vestmannaeyjaferja.
    Gagnrýnt er að áform meiri hlutans um smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju lágu ekki fyrir fyrr en rétt áður en frumvarp til fjárlaga var afgreitt úr fjárlaganefnd til 3. umræðu. Óásættanlegt er að í fjárlagafrumvarpið og í breytingartillögur fjárlaganefndar vanti fjármagn til að smíða ferjuna. Í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar segir aðeins að vinna skuli að „fjármögnunarleiðum samhliða undirbúningi útboðs sem fyrirhugað er á fyrri hluta komandi árs.“ Meiri hlutinn hefur ekki enn tryggt fjármögnun þessa mikilvæga verkefnis en setur fram óljósan texta um málið í nefndarálit sitt. Skilningsleysi virðist ríkja hjá stjórnarmeirihlutanum um mikilvægi öruggra samgangna til Vestmannaeyja og að unnið verði hratt og ákveðið að því verki að smíða nýja ferju.

Helguvík.
    Minni hlutinn leggur fram tillögu um fjárframlag til framkvæmda vegna viðlegukants við Helguvíkurhöfn. Mikilvægt er að jafnræði ríki á milli iðnaðarsvæða um fjárstuðning ríkisins. Nú hefur fyrirvörum verið létt vegna byggingar kísilvers á iðnaðarsvæðinu við Helguvík í Reykjanesbæ og framkvæmdir hafnar. Ríkisframlag vegna framkvæmda við Helguvíkurhöfn á árinu 2015 þarf að koma til vegna nauðsynlegra framkvæmda við höfnina fyrir starfsemi kísilversins. Engar tillögur eru þar um í frumvarpinu eða breytingartillögum meiri hlutans en minni hlutinn leggur til 180 millj. kr. framlag til verksins.

Bankasýsla ríkisins.
    Bankasýslu ríkisins var komið á fót með lögum nr. 88/2009. Bankasýslan á að leggja áherslu á endurreisn og uppbyggingu öflugs innlends fjármálamarkaðar og stuðla að virkri og eðlilegri samkeppni á þeim markaði, tryggja gagnsæi í allri ákvarðanatöku varðandi þátttöku ríkisins í fjármálastarfsemi og tryggja virka upplýsingamiðlun til almennings. Í starfsemi sinni er Bankasýslunni m.a. ætlað að gæta þess vandlega að kappkosta að efla og styrkja samkeppni á fjármálamarkaði. Lögin um Bankasýsluna byggjast á armslengdarsjónarmiðum. Í frumvarpi til þeirra laga er fjallað um að Bankasýslan verði rekin á faglegum forsendum með það að markmiði að byggja upp trúverðugt og traust fjármálakerfi til framtíðar og stuðla þannig að virkri og eðlilegri samkeppni á þeim markaði. Í lögunum kemur fram að Bankasýslan eigi að starfa í fimm ár en breyta þarf lögunum til að leggja hana niður, enda væri þá engin umgjörð til um þau mikilvægu verkefni sem Bankasýslan á að sinna. Nú bregður svo við að ekkert fjármagn er ætlað í Bankasýsluna og eins og stendur í fjárlagafrumvarpinu á bls. 417: „Framlög hækka um 47,2 m.kr. vegna verkefna sem áður var sinnt af Bankasýslu ríkisins, en samkvæmt lögum nr. 88/2009 fór hún með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Samkvæmt sömu lögum skyldi hún lögð niður árið 2014. Í ljósi þess að ríkissjóður fer áfram með eignarhluti í fjármálafyrirtækjum er fyrirhugað að verkefnin verði færð til aðalskrifstofu ráðuneytisins, en jafnframt er gert ráð fyrir að eignarhlutum í öðrum fyrirtækjum í ríkiseigu verði sinnt með sambærilegum hætti.“ Ætlunin er að fella verkefni Bankasýslunnar undir fjármála- og efnahagsráðuneytið án laga þar um. Það er ekki ásættanlegt þegar til stendur að selja eignarhluti ríkisins á árinu 2015 eins og fram kemur m.a. í yfirliti yfir sjóðstreymi ríkissjóðs á bls. 4 í fjárlagafrumvarpinu. Slík ráðstöfun er auk þess ekki til þess fallin að auka traust og trúverðugleika hvað varðar meðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum með neinum hætti. Auk þess hefur engum starfsmanni Bankasýslunnar verið sagt upp og því óvíst hvaðan eigi að greiða laun starfsmannanna á árinu 2015. Þessi lausatök um meðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum eru harðlega gagnrýnd af 1. minni hluta og óskiljanlegt er að stjórnarmeirihlutinn ætli sér að færa umsýsluna með sölu þeirra í hendurnar á fjármála- og efnahagsráðherra. Spyrja má um armslengdarsjónarmiðin og gegnsæi þegar svo er komið.

Alþingi, 15. desember 2014.

Oddný G. Harðardóttir.