Ferill 295. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 794 — 295. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá
Birni Val Gíslasyni um fjölda opinberra starfa.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hafa fjárlög fyrir árið 2014 haft áhrif á fjölda starfa í ráðuneytinu eða stofnunum sem undir ráðuneytið heyra? Ef svo er, hverjar eru breytingarnar og um hve mörg störf er að ræða?
2. Hvaða áhrif er áætlað að frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2015, verði það samþykkt óbreytt, hafi á fjölda starfa í ráðuneytinu eða stofnunum sem undir ráðuneytið heyra? Hverjar eru áætlaðar breytingar og um hve mörg störf er að ræða?
Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum, landshlutum og kyni starfsmanna sem breytingarnar snerta.
1. Áhrif fjárlaga fyrir árið 2014 á fjölda starfa.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Störfum á aðalskrifstofu ráðuneytisins fækkaði um sjö í framhaldi af 5% aukinni hagræðingarkröfu sem Alþingi gerði við þriðju umræðu fjárlaga fyrir árið 2014. Störfunum sinntu fjórir karlar og þrjár konur.
Ríkisskattstjóri.
Lækkun fjárveitinga leiddi til fækkunar starfa. Ekki var um að ræða uppsagnir á grundvelli hagræðingar heldur voru lagðar niður stöður þeirra starfsmanna sem létu af störfum af ýmsum ástæðum. Ein kona á Vestfjörðum sagði starfi sínu lausu en á höfuðborgarsvæðinu létu sjö konur og tveir karlar af störfum, samtals tíu störf. Á árinu fjölgaði störfum tímabundið um tíu vegna vinnu við niðurfærslu höfuðstóls verðtryggðra íbúðalána.
Í öðrum stofnunum sem heyra undir ráðuneytið hafa ekki orðið breytingar á fjölda starfa á árinu 2014 sem rekja má til breytinga í fjárveitingum þeirra í fjárlögum ársins.
2. Áætluð áhrif fjárlaga fyrir árið 2015 á fjölda starfa.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Gera má ráð fyrir fjölgun um tvö til fjögur störf, m.a. vegna innleiðingar nýrra laga um opinber fjármál og vegna verkefna sem hefur verið sinnt af Bankasýslu ríkisins þegar starfsemi hennar lýkur.
Bankasýsla ríkisins.
Gert er ráð fyrir að Bankasýsla ríkisins starfi þar til ný lög um verkefni hennar taka gildi, í hið mesta til loka júní 2015. Hjá stofnuninni hafa starfað þrír karlar og ein kona.
Fjársýsla ríkisins.
Í svari stofnunarinnar kom fram að ekki væri gert ráð fyrir breytingum á fjölda stöðugilda á árinu 2015 vegna reglubundinna verkefna stofnuninnar. Í frumvarpi til fjárlaga er gert ráð fyrir framlagi til að mæta innleiðingarkostnaði í tengslum við ný lög um opinber fjármál. Frumvarp er enn í meðförum Alþingis og verkefnið er í mótun. Gera má ráð fyrir að innleiðing laganna hafi tímabundin áhrif á fjölda starfa.
Rekstrarfélag Stjórnarráðsins.
Rekstrarfélag Stjórnarráðsins er fjármagnað annars vegar með beinu framlagi úr ríkissjóði og hins vegar í formi leigugreiðslna frá aðalskrifstofunum. Leigugreiðslurnar nema um 75% af framlagi til félagsins. Í framhaldi af 5% aukinni hagræðingarkröfu sem Alþingi gerði við 3. umræðu fjárlaga fyrir árið 2014 þurfti félagið að leita leiða til að draga úr útgjöldum og var ákveðið að breyta fyrirkomulagi ræstinga í fjórum ráðuneytum sem félagið annast og bjóða þær út. Breytingarnar leiða til starfsloka 17 kvenna á höfuðborgarsvæðinu í hlutastörfum en leitast verður við að gefa þeim kost á starfi hjá nýjum aðila.
Ríkisskattstjóri.
Miðað við óbreytt frumvarp til fjárlaga má gera ráð fyrir að störfum fækki um 14 til 17. Fyrir liggur að ekki verður ráðið í stað fjögurra kvenna, tveggja sem starfa á Norðurlandi og Austurlandi og tveggja á höfuðborgarsvæðinu, og fjögurra karla á höfuðborgarsvæðinu. Frekari ákvarðanir liggja ekki fyrir. Enn fremur er gert ráð fyrir að tíu starfsmenn sem ráðnir voru tímabundið til starfa við niðurfærslu höfuðstóls verðtryggðra íbúðalána muni láta af störfum á árinu 2015.
Skattrannsóknarstjóri.
Í svari stofnunarinnar kemur fram að verði frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2015 samþykkt óbreytt mun það hafa áhrif á fjölda starfa hjá embættinu. Í frumvarpinu var gert ráð fyrir að fjárheimildir lækki um 39,4 millj. kr. sem bregðast þyrfti við með því að fækka starfsmönnum um fimm til sex.
Samkvæmt upplýsingum frá embætti tollstjóra og yfirskattanefnd er ekki gert ráð fyrir breytingum á fjölda stöðugilda á árinu 2015.
Fasteignir ríkissjóðs, Fjármálaeftirlitið, Framkvæmdasýsla ríkisins, Ríkiskaup og Seðlabanki Íslands sem einnig heyra undir ráðuneytið fá ekki bein framlög úr ríkisjóði, heldur eru þær fjármagnaðar með mörkuðum tekjustofni eða ríkistekjum. Ekki voru gerðar slíkar breytingar á fyrirkomulagi fjárveitinga þeirra að þær leiði til breytinga á starfsmannahaldi.