Ferill 441. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 826  —  441. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Svandísi Svavarsdóttur
um umhverfismat vegna áforma um vegagerð á Sprengisandi.


     1.      Hver tók ákvörðun um að hefja mat á umhverfisáhrifum nýrrar Sprengisandsleiðar, F26?
    Vegagerðin tók þá ákvörðun. Til frekari skýringa á þeirri ákvörðun er eftirfarandi tekið fram: Í svæðisskipulagi miðhálendisins eru skilgreindar fjórar tegundir vega sem skipt er eftir gæðum og eru aðalfjallvegir þar í efsta flokki. Aðalfjallvegir eru skilgreindir sem stofnvegir hálendis, byggðir sem fólksbílafærir sumarvegir með brúuðum ám. Þeir tengja saman byggðarlög þvert yfir hálendið og liggja um helstu byggingarsvæði þess. Þeir eru hluti þjóðvegakerfis sem haldið er við af opinberu fé. Sprengisandsvegur er skilgreindur sem aðalfjallvegur. Á sérkorti 1 svæðisskipulagsins er sýnd beltaskipt landnotkun miðhálendisins og á mannvirkjabeltinu þar er gert ráð fyrir helstu mannvirkjum, háspennulínum, orkuverum og aðalfjallvegum. Á sérkorti 6, náttúruverndarsvæði og mannvirkjabelti, eru sýnd tengsl mannvirkjabelta við helstu landnotkunarþætti; verndarsvæði, samgöngur, þjónustustaði ferðamanna og orkuvinnslu. Öll ákvæði svæðisskipulags hálendisins hafa nú verið færð inn í aðalskipulag viðkomandi sveitarfélaga.
    Í a-lið 2. mgr. 8. gr. vegalaga eru stofnvegir skilgreindir en þeir eru hæsti flokkur þjóðvega. Þar á meðal eru skilgreindir vegir á hálendinu sem mikilvægir eru fyrir flutninga og ferðaþjónustu. Við gerð samgönguáætlunar hverju sinni er skilgreint nánar hvaða vegir teljast til stofnvega samkvæmt ákvæðum vegalaga. Í núgildandi samgönguáætlun eru Kaldadalsvegur, Kjalvegur, Sprengisandsleið og Fjallabaksleið nyrðri skilgreindir sem stofnvegir á hálendinu með mikilvægi fyrir flutninga og þjónustu.
    Landsnet og Landsvirkjun óskuðu eftir því fyrir nokkrum árum að Vegagerðin kæmi að sameiginlegri frumathugun á gerð háspennulínu, virkjana og vegar á Sprengisandi. Markmiðið var m.a. að stilla saman legu vegar og háspennulínu ef til lagningar þessara mannvirkja kæmi. Niðurstöður frumathugunarinnar voru kynntar viðkomandi sveitarstjórnum í Ásahreppi, Rangárþingi ytra og Þingeyjarsveit og fengu almennt jákvæðar móttökur.
    Í kjölfarið var ákveðið að óska eftir að sveitarfélögin aðlöguðu aðalskipulag sitt að þeim hugmyndum sem fram komu í forathuguninni og tóku sveitarfélögin jákvætt í þá ósk. Landsnet leitaði síðan eftir því við Vegagerðina að fram færi umhverfismat vegna lagningar háspennulínunnar og Sprengisandsleiðar samhliða vinnu við breytingar á aðalskipulagi sveitarfélaganna og varð Vegagerðin við þeirri ósk.
    Hjá Vegagerðinni er á hverju ári unnið að gagnasöfnun, úttektum og skilgreiningum á fjölmörgum framtíðarverkefnum í vegamálum sem ekki eru komin á framkvæmdastig eða með fastsettar tíma- og kostnaðaráætlanir. Má nefna að áætlað er að næstu áratugi þurfi að fjárfesta fyrir um 400 milljarða kr. til að uppfylla framkvæmdamarkmið í samgönguáætlun sem samþykkt hefur verið á Alþingi. Vegagerðin telur nauðsynlegt að vinna að undirbúningi allra stórra verka með góðum fyrirvara og að safna saman nauðsynlegum gögnum fyrir upplýsta umræðu í samfélaginu og á Alþingi áður en framkvæmdir eru ákveðnar eða settar á 12 ára samgönguáætlun. Það var mat Vegagerðarinnar þegar framangreind beiðni frá Landsneti kom fram, að það væri í þágu almennrar upplýstrar umræðu um nýtingu hálendisins að gagna væri aflað um þau umhverfisáhrif sem vegir og vegagerð á svæðinu mundu hafa og gera almenningi, hagsmunaaðilum og sveitarfélögum kleift að koma sínum sjónarmiðum og athugasemdum á framfæri. Í tilfelli Sprengisandsleiðar þarf t.d. að gera grein fyrir því hvaða lega eða staðsetning væri ásættanlegust með tilliti til áhrifa á víðerni, landslag, gróðurfar og dýralíf, jarðmyndanir, sjónræn áhrif, m.a. með tilliti til hugsanlegrar háspennulínu, efnisþarfar og efnistökustaða (námur), útivistar og ferðaþjónustu, skipulags sveitarfélaga o.fl. Einnig þarf að gera grein fyrir mismunandi gerðum vega (breidd, hæð yfir landi, hönnunarhraða o.fl.) og áhrifum þeirra á umhverfið.
    Framangreind samantekt lýsir bakgrunni þeirrar ákvörðunar Vegagerðarinnar að taka nú þátt í umhverfismatsferli Sprengisandsleiðar þótt hugsanlegar framkvæmdir séu ekki á döfinni í náinni framtíð.

     2.      Hver stendur straum af kostnaði vegna mats á umhverfisáhrifum áformaðrar vegagerðar?
    Vegagerðin og Landsnet skipta með sér kostnaði vegna umhverfismats beggja framkvæmda, að mestu til helminga. Mikil samlegðaráhrif eru á mati beggja framkvæmda og því verulegur sparnaður af sameiginlegri vinnu við matið.

     3.      Hversu mikið er áætlað að umhverfismatið kosti?

    Gerðir hafa verið samningar við ýmsa ráðgjafa um rannsóknir á Sprengisandi að upphæð um 53 millj. kr. sem skiptist um það bil til helminga milli Landsnets og Vegagerðarinnar, eins og áður segir. Má þar nefna rannsóknir á fuglalífi, gróðurfari, landgreiningu og landslagi, ferðamálum, sjónrænum áhrifum, jarðefnum og jarðmyndunum og fornleifum. Að auki kemur kostnaður vegna auglýsinga, kynningar og vinnu starfsmanna Vegagerðarinnar við gerð matsskýrslunnar. Þar sem nú er aðeins upphafið að löngu ferli og ómögulegt að segja fyrir um hvaða nýjar kröfur um rannsóknir og viðbótarkostnaður kunni að falla á Vegagerðina, þá er ekki unnt að gefa nákvæmar tölur fyrir frekari kostnað á þessari stundu. Ekki er ólíklegt að heildarkostnaður Vegagerðarinnar muni nema 35–40 millj. kr. sem skiptist a.m.k. á tvö ár. Fjárveitingar koma af samgönguáætlun þar sem árlega er tekið frá fjármagn til undirbúnings verka sem ekki hafa sérstaka fjárveitingu.