Ferill 495. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 848  —  495. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um greiðslu á söluandvirði ríkiseigna.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


    Hvenær eru dagsettar undirritanir samninga um sölu ríkiseigna sem tilgreindar eru í svari ráðherra við fyrirspurn um söluandvirði ríkiseigna í 148. máli (þskj. 419) og hvenær var söluandvirði þeirra greitt? Óskað er eftir yfirliti yfir greiðslu söluverðs hverrar eignar um sig frá því að fyrsta greiðsla fór fram og þar til sú síðasta var innt af hendi þar sem fram komi dagsetning hverrar greiðslu og upphæð.


Skriflegt svar óskast.