Ferill 356. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 859  —  356. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um tekjuskatt, lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda,
lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, lögum um fjársýsluskatt,
tollalögum, lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.
og lögum um búnaðargjald, með síðari breytingum
(samræming og einföldun).

(Eftir 2. umræðu, 21. janúar.)


I. KAFLI


Breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum.
1. gr.

    2. málsl. 3. tölul. og 3. málsl. 4. tölul. 1. mgr. 2. gr. laganna falla brott.

2. gr.

    Orðin „sbr. 1. málsl. 3. tölul. 1. mgr. og 2. málsl. 2. mgr. 8. gr.“ í 3. mgr. 16. gr. laganna falla brott.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 57. gr. laganna:
     a.      Orðin „með tilliti til milliverðlagningarreglna Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD)“ í 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
     b.      2. málsl. c-liðar 4. mgr. fellur brott.
     c.      3. málsl. 5. mgr. orðast svo: Skjölunarskyldur aðili skal varðveita sérstaklega gögn um slík viðskipti, upplýsingar um viðskiptaskilmála, veltu, eignir og annað sem þýðingu kann að hafa við milliverðlagninguna og sýna fram á að verð og skilmálar séu sambærileg því sem almennt gerist í viðskiptum milli ótengdra aðila undir sambærilegum kringumstæðum.

4. gr.

    Í stað hlutfallstölunnar „18%“ í 1. mgr. 2. tölul. og 1. málsl. a-liðar 3. tölul. 70. gr. laganna kemur: 20%.

5. gr.

    Í stað orðanna „og 7. tölul.“ í 1. málsl. 4. mgr. 71. gr. laganna kemur: 7. og 8. tölul.

6. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. málsl. 1. mgr. 111. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „stjórnsýsluumdæmi Reykjavíkur“ kemur: umdæmi sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu.
     b.      Í stað orðsins „stjórnsýsluumdæmum“ kemur: umdæmum.

7. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 112. gr. laganna:
     a.      3. málsl. 1. mgr. orðast svo: Eindagi er síðasti virki dagur mánaðarins, sbr. þó 5. og 6. mgr.
     b.      Við 6. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Eindagi er mánuði eftir gjalddaga.

8. gr.

    Í stað orðanna „og 2013“ í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XLIV í lögunum kemur: 2013 og 2014.

II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda,
með síðari breytingum.

9. gr.

    Í stað orðanna „og 8. tölul. 3. gr.“ og „og 8. tölul. 70. gr.“ í 2. málsl. A-liðar 2. gr. laganna kemur: 8. og 10. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 3. gr.; og: 8. og 10. tölul. 70. gr.

10. gr.

    Í stað orðanna „og 8. tölul.“ í 6. tölul. 5. gr. laganna kemur: 8. og 10. tölul. 1. mgr. og 2. mgr.

11. gr.

    Í stað orðanna „og 8. tölul.“ í 4. mgr. 9. gr. laganna kemur: 8. og 10. tölul. 1. mgr. og 2. mgr.

III. KAFLI
Breyting á lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur,
með síðari breytingum.

12. gr.

    Í stað orðanna „og 7. tölul.“ í 1. málsl. 2. mgr. 2. gr. laganna kemur: 7. og 8. tölul.

IV. KAFLI
Breyting á lögum nr. 165/2011, um fjársýsluskatt, með síðari breytingum.
13. gr.

    Á eftir orðunum „önnur fjármálafyrirtæki samkvæmt lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki“ í 2. tölul. 2. gr. laganna kemur: rafeyrisfyrirtæki samkvæmt lögum nr. 17/2013, um útgáfu og meðferð rafeyris, og aðrir þeir aðilar.

V. KAFLI
Breyting á tollalögum nr. 88/2005, með síðari breytingum.
14. gr.

    Við 1. mgr. 7. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Af tækjum og öðrum búnaði sem fluttur er hingað til lands í kjölfar viðbragðsaðgerða vegna mengunarslysa og náttúruhamfara.

15. gr.

    Við 47. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Tollstjóra er heimilt að birta tollmiðlara ákvarðanir og leiðbeiningar vegna umbjóðanda hans, sbr. 20. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og skal tollmiðlari upplýsa umbjóðanda sinn um þær.

16. gr.

    Við 4. tölul. 2. mgr. 48. gr. laganna bætist: ásamt viðeigandi málsmeðferðarreglum.

17. gr.

    Við 130. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Heimilt er að kæra ákvörðun um stöðvun tollafgreiðslu til ráðuneytis tollamála, sbr. VII. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Ákvörðun um að vara sé leyfisskyld er heimilt að kæra til stofnunar þeirrar sem tók ákvörðun um leyfisskyldu og/eða fagráðuneytis þeirrar stofnunar.

VI. KAFLI
Breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.,
með síðari breytingum.

18. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „búnar til flutnings á fötluðum, þ.m.t. búnar hjólastólalyftu“ í m-lið 1. tölul. kemur: útbúnar fyrir fatlað fólk. Bifreiðarnar skulu búnar hjólastólalyftu eða öðrum sambærilegum búnaði.
     b.      Við b-lið 3. tölul. bætist: fjórhjól, sexhjól, körtur, golfbílar og beltabifreiðar, þ.m.t. vélsleðar.

VII. KAFLI
Breyting á lögum nr. 84/1997, um búnaðargjald, með síðari breytingum.
19. gr.

    4. málsl. 4. mgr. 5. gr. laganna orðast svo: Við mismun sem á rætur að rekja til of hárrar fyrirframgreiðslu skal reikna vexti jafnháa vöxtum sem Seðlabanki Íslands ákveður og birtir á hverjum tíma skv. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu.

20. gr.

    Ákvæði 1.–3. og 7.–8. gr. öðlast þegar gildi.
    Ákvæði 4.–5. og 9.–12. gr. öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda við álagningu 2016 og á staðgreiðsluárinu 2015 eftir því sem við á.
    Ákvæði 6. og 13.–18. gr. öðlast gildi 1. janúar 2015.
    Ákvæði 19. gr. öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda við álagningu 2016 vegna mismunar á fyrirframgreiðslu 2015 og álagningu 2016.