Ferill 505. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 875  —  505. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um staðsetningu þjónustu við flugvél Isavia.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.


     1.      Hefur ráðherra kynnt sér eða verið upplýstur um þá ákvörðun Isavia að hverfa frá Akureyri með þjónustu við flugvél sína sem þar hefur verið staðsett stóran hluta ársins?
     2.      Hafa stjórnvöld samgöngumála og heilbrigðismála metið áhrif þessarar ákvörðunar Isavia á öryggi sjúkraflugs og getu flugrekenda til að sinna því með fullnægjandi hætti í ljósi yfirlýstrar stefnu um miðstöð sjúkraflugs á Akureyri?
     3.      Hyggjast stjórnvöld gera ráðstafanir vegna þeirra starfa sem tapast nyrðra standi þessi ákvörðun óbreytt?