Ferill 506. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 876 — 506. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um skráningu barna í trú- og lífsskoðunarfélög.
Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.
1. Hversu mörg börn voru við fæðingu sjálfkrafa skráð í trú- og lífsskoðunarfélög síðustu 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda skráninga í hvert trú- og lífsskoðunarfélag á ári.
2. Hversu mörg börn voru við fæðingu skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga sömu ár?
3. Hversu mörg börn voru skráð í trú- og lífsskoðunarfélög innan árs frá fæðingu á sama tíma? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda skráninga í hvert trú- og lífsskoðunarfélag á ári.
Skriflegt svar óskast.