Ferill 507. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 880 — 507. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um rannsóknir á Grynnslunum
fyrir utan Hornafjarðarós.
Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.
1. Hver er staða rannsókna á Grynnslunum fyrir utan Hornafjarðarós?
2. Hefur ráðherra tryggt að rannsóknir haldi áfram í sumar og þá hvernig?
3. Ef ekki, til hvaða ráðstafana hyggst ráðherra grípa til að tryggja þær rannsóknir sem nauðsynlegar eru fyrir framkvæmdir til að gera innsiglinguna í Hornafjarðarhöfn greiða og örugga?
4. Ef rannsóknir halda áfram í sumar, hvenær má þá búast við að framkvæmdir geti hafist á grundvelli þeirra?
Skriflegt svar óskast.