Ferill 442. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 910 — 442. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Jóni Þór Ólafssyni um fulltrúa í starfshópum
og nefndum á vegum ráðuneytisins og stofnana þess.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Í hvaða hópum, nefndum og öðrum sambærilegum samráðsvettvangi á vegum ráðuneytisins og stofnana þess sitja fulltrúar:
a. frjálsra félagasamtaka á neytendasviði á borð við Hagsmunasamtök heimilanna,
b. fjármálafyrirtækja og samtaka þeirra á borð við Samtök fjármálafyrirtækja?
2. Hversu margir eru fulltrúarnir í hverju tilviki?
Fulltrúar í nefndum og starfshópum á vegum ráðuneytisins og stofnana þess.
| Nefndir og starfshópar | Aðilar | Fjöldi fulltrúa |
| Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa | Neytendasamtökin | 1 |
| Fagráð um fjarskiptamál | Neytendasamtökin | 1 |
| Fagráð um umferðarmál | Félag íslenskra bifreiðaeigenda og Samtök fjármálafyrirtækja |
2 |
| Starfshópur um áratug umferðaröryggis 2011–2020 | Félag íslenskra bifreiðaeigenda og Samtök fjármálafyrirtækja |
2 |
| Stjórn Þjóðskrár Íslands | Samtök fjármálafyrirtækja | 1 |
Vakin er athygli á því að starfsmenn ráðuneytisins og fulltrúar taka þátt í hinum ýmsu nefndum/starfshópum eða samráðsvettvangi á vegum annarra ráðuneyta sem snerta málefnasvið fyrirspurnarinnar. Jafnframt er það stefna ráðuneytisins að stuðla að opnu samráði við gerð lagafrumvarpa og reglugerða á málefnasviði þess og því eru þau sett til umsagnar á vefsíðu ráðuneytisins.
Við vinnslu svars við fyrirspurninni var óskað eftir upplýsingum frá Samgöngustofu, Vegagerðinni, Þjóðskrá Íslands, Neytendastofu og Póst- og fjarskiptastofnun. Samkvæmt þeim eru engar formlegar nefndir eða hópar á þeirra vegum þar sem fulltrúar frjálsra félagasamtaka eða fjármálafyrirtækja eiga fulltrúa. Vegagerðin heldur aftur á móti reglulega samráðs- og upplýsingafundi með hinum ýmsu aðilum.