Ferill 472. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 911  —  472. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ögmundi Jónassyni
um söfnunarkassa og happdrættisvélar.


    Leitað var eftir upplýsingum frá Íslandsspilum sf. og Happdrætti Háskóla Íslands vegna fyrirspurnarinnar. Meðfylgjandi tölur eru byggðar á upplýsingum þaðan.

     1.      Hverjar voru brúttótekjur Íslandsspila sf. og Happdrættis Háskóla Íslands af söfnunarkössum og happdrættisvélum árin 2011, 2012, 2013 og 2014?

Tekjur, millj. kr.

2011 2012 2013 2014
Brúttótekjur
    HHÍ – happdrættisvélar 5.563 5.489 5.515 5.085
    Íslandsspil 3.817 3.943 3.852 3.916
Hreinar happdrættistekjur
    HHÍ – happdrættisvélar 1.802 1.698 1.631 1.550
    Íslandsspil 1.330 1.311 1.257 1.262

    Brúttótekjur eru innkomið fé af sölu. Hreinar happdrættistekjur eru brúttótekjur að frádregnum vinningum.
    Tölur Happdrættis Háskóla Íslands eiga einungis við um umfang og rekstur happdrættisvéla en ekki annan rekstur happdrættisins.
    Söfnunarkassar og happdrættisvélar eru í fyrirspurn einnig nefnd spilakassar og spilavélar.

     2.      Hver voru heildarrekstrargjöld hvors fyrirtækis á þessum árum og hve stór hluti rekstrargjalda rann a) til kaupa, b) til leigu á spilakössum?

Heildarrekstrargjöld, millj. kr.

2011 2012 2013 2014
Heilarrekstrargjöld
    HHÍ – happdrættisvélar 1.106 1.105 1.076 982
    Íslandsspil 530 541 522 479

Hluti rekstrargjalda til kaupa og leigu á spilakössum, %.

2011 2012 2013 2014
a) Til kaupa á spilakössum, % af rekstrargjöldum
    HHÍ – happdrættisvélar 0 0 0 0
    Íslandsspil 27,7 27,7 22,4 18,4
b) Til leigu á spilakössum, % af rekstrargjöldum
    HHÍ – happdrættisvélar 33,5 36,8 37,1 35,3
    Íslandsspil 0 0 0 0
    Heildarrekstrargjöld eru öll rekstrargjöld, þar með talið laun starfsfólks, ferðakostnaður og skrifstofukostnaður, umboðslaun til rekstraraðila spilastaða og kostnaður við spilakassa, hvort sem þeir eru leigðir eða keyptir.

     3.      Af hvaða aðilum hafa spilakassar, annars vegar Happdrættis Háskóla Íslands og hins vegar Íslandsspila sf., verið keyptir eða leigðir eftir atvikum fyrrgreind ár og hve stór hluti tekna af spilakössum, hlutfallslega og í krónum, rann til rekstraraðila þar sem spilavélarnar eru starfræktar?

Birgjar.

2011 2012 2013 2014
HHÍ –
happdrættisvélar
International Game Technology International Game Technology International Game Technology International Game Technology
Íslandsspil Scientific Games, Gtech Scientific Games, Gtech Scientific Games, Gtech Scientific Games, Gtech

Hluti af hreinum happdrættistekjum til rekstraraðila
þar sem vélar eru starfræktar (umboðslaun), %.

2011 2012 2013 2014
HHÍ – happdrættisvélar 24,6 24,4 24,9 24,6
Íslandsspil 16,5 17,1 17,4 17,8

Fjárhæðir af hreinum happdrættistekjum til rekstraraðila
þar sem vélar eru starfræktar (umboðslaun), millj. kr.

2011 2012 2013 2014
    HHÍ – happdrættisvélar 442 415 406 381
    Íslandsspil 220 224 219 224

     4.      Hverjar voru heildarvinningsfjárhæðir hvors fyrirtækis framangreind ár?


Heildarvinningsfjárhæðir, millj. kr.

2011 2012 2013 2014
HHÍ – happdrættisvélar 3.761 3.791 3.884 3.535
Íslandsspil 2.487 2.632 2.595 2.654

     5.      Hverjar voru tekjur hvors fyrirtækis að frádregnum vinningum og kostnaði sömu ár?

Tekjur að frádregnum vinningum og kostnaði 1 , millj. kr.

2011 2012 2013 2014
HHÍ – happdrættisvélar 709 628 603 595
Íslandsspil 802 772 736 780


Neðanmálsgrein: 1
1     Fjárhæð sem er til ráðstöfunar til þeirra verkefna sem fyrirtækin fjármagna.