Ferill 431. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 947  —  431. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Guðbjarti Hannessyni
um framtíð Hólaskóla – Háskólans á Hólum.


     1.      Hver eru áform ráðherra varðandi framtíð Hólaskóla?
    Um þessar mundir er unnið að gerð stefnumótunar í ráðuneytinu um málefnasviðið „háskólar og vísindastarfsemi“ og er líklegt að á grundvelli hennar verði m.a. mótaðar tillögur um framtíð Háskólans á Hólum. Skipaður hefur verið starfshópur sem hefur það hlutverk að leggja mat á fjárhagslegan og faglegan ávinning af aukinni samvinnu/samrekstri Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskólans á Hólum og Háskólans á Bifröst.

     2.      Hefur ráðherra kynnt tillögur um faglega og fjárhagslega framtíð skólans og ef svo er, hvaða gögn eru til grundvallar tillögunum og hverjum hafa þær verið kynntar?
    Nei, ekki enn sem komið er.

     3.      Hefur ráðherra áform um sameiningu skólans við aðra háskóla? Ef svo er, um hvaða háskóla ræðir? Liggur fyrir fullmótuð áætlun um slíka sameiningu og skiptingu verkefna milli þeirra háskóla sem yrðu sameinaðir? Liggur fyrir greining á áhrifum sameiningar á námsframboð og rannsóknir? Liggur fyrir kostnaðarmat vegna slíkrar sameiningar?
    Á grundvelli faglegra og fjárhagslegra forsenda er mikilvægt að breyting verði gerð á skipulagi Háskólans á Hólum. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti það yrði gert en slík breyting yrði gerð á grundvelli stefnumótunarvinnu sem nú fer fram í ráðuneytinu, sbr. svar við 1. tölul. hér að framan.

     4.      Hver eru áform ráðherra varðandi skuldir skólans og fjárveitingar til hans? Hefur ráðherra lagt fram tillögur þar að lútandi?
    Ekki hafa verið lagðar fram neinar tillögur varðandi skuldir skólans né fjárveitingar umfram það sem fram kemur í fjárlögum fyrir árið 2015. Að öðru leyti vísast í svar við 1. tölul. hér að framan varðandi stefnumótunarvinnu sem nú fer fram í ráðuneytinu.

     5.      Er unnið að varanlegri lausn á fjárhagsvanda skólans? Ef svo er, hverjir koma að þeirri vinnu?

    Fjárhagslegar forsendur og rekstur Háskólans á Hólum eru viðvarandi viðfangsefni ráðuneytisins og að því máli koma yfirstjórn skólans, fjármála- og efnahagsráðuneyti og mennta- og menningarmálaráðuneyti. Að öðru leyti vísast í svar við 1. tölul. varðandi stefnumótunarvinnu sem nú fer fram í ráðuneytinu.