Ferill 377. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 949  —  377. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Jóni Þór Ólafssyni
um aðgang að upplýsingum við vinnu við fjárlaga- og tekjufrumvörp.


     1.      Hvaða upplýsingar, á hvaða formi og með hvaða forritum og tölvukerfum, eru notaðar í ráðuneytinu við vinnu við fjárlaga- og tekjufrumvörp?
    Við vinnslu fjárlaga- og tekjufrumvarpa ár hvert er stuðst við margvíslegar upplýsingar úr mismunandi upplýsingakerfum og forritum innan ráðuneytisins.
    Í fjárlagagerðinni fer stór hluti af upplýsingamiðluninni í gegnum svokallað fjárlagakerfi sem ætlað er ráðuneytum og Alþingi við undirbúning fjárlaga. Það kerfi heldur m.a. utan um allar fjárlagatillögur og fjárreiður ríkisaðila vegna frumvarps til fjárlaga, fjáraukalaga og lokafjárlaga en það á jafnt við um A-hluta stofnanir, B-hluta ríkisfyrirtækja og C-hluta lánasjóða. Þá heldur kerfið utan um allar fjárreiður ríkistekna auk þess sem úr kerfinu eru framleiddar greinargerðir, yfirlit, sundurliðanir og talnabálkar fyrir fjárlagaritin. Fyrir utan tillögugerðina sem fer fram í gegnum fjárlagakerfið eru fagráðuneyti í miklum samskiptum við fjármála- og efnahagsráðuneytið varðandi undirbúning fjárlaga. Þannig senda fagráðuneyti ýmis vinnugögn til ráðuneytisins, svo sem reiknilíkön, minnisblöð og útreikninga sem geta verið á ýmsu formi en algengast er að þau berist á Word-, Excel- eða pdf-formi. Flest öll reiknilíkön sem notuð eru í tengslum við gerð fjárlagafrumvarpsins eru unnin í Excel og má þar nefna útreikning á vaxtatekjum, vaxtagjöldum, atvinnuleysisbótum, bótum almannatrygginga, langtímaáætlun ríkissjóðs og launa-, verðlags- og gengisútreikning fjárlaga, svo nokkur dæmi séu tekin. Af öðrum gögnum sem stuðst er við má nefna gögn úr fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins, Orra (Oracle E-Business Suite). Kerfið heldur m.a. utan um bókhald ríkissjóðs og stofnana ríkisins og er einnig notað fyrir alla uppgjörsvinnu við gerð ríkisreiknings.
    Við gerð tekjuáætlunar fjárlaga og mats á áhrifum breytinga á skattalögum er auk þess byggt á gögnum frá stofnunum ráðuneytisins um stöðu skattstofna og ýmsum opinberum gögnum um þróun innlendra efnahagsmála þar sem byggt er á þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Tekjuáætlunin er að mestu leyti unnin í reiknilíkönum sem eru í Excel en auk þess er stuðst við SQL-gagnagrunn en þar eru vistaðar álagningarskrár og staðgreiðslugögn frá ríkisskattstjóra. Reiknilíkön í SQL-gagnagrunninum eru notuð til að áætla tekjuskatt einstaklinga, barna- og vaxtabætur.
    Fjárlagafrumvarpið sjálft er að mestu unnið með Office 2010 og fer öll ritvinnsla og umbrot fram í Word en myndir, töflur og reikniverk eru unnin í Excel. Þá eru ýmis grunngögn að baki töflum og myndum sótt með fyrirspurnum í gagnagrunn fjárlagakerfisins.

     2.      Hvað af þessum upplýsingum, forritum og kerfum eru aðgengileg fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd þegar þær sinna lögbundnu hlutverki sínu skv. 13. gr. og 4. mgr. 25. gr. laga um þingsköp Alþingis og fjalla um frumvörpin?
    Bæði fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd hafa aðgang að upplýsingunum sem fram koma í frumvörpunum sjálfum, bæði prentuðum eintökum og á fjárlagavefnum, en þar fyrir utan hefur fjárlaganefnd aðgengi að fjárlagakerfinu. Í þessu samhengi er rétt að geta þess að nefndirnar geta ávallt óskað eftir nánari skýringum, útreikningum og gögnum í tengslum við frumvörpin eftir því sem þörf er á.

     3.      Hafa þingmenn sama aðgang að upplýsingum, forritum og kerfum svo þeim sé fært að nýta rétt sinn skv. 46. gr. laga um þingsköp Alþingis og bera fram breytingartillögur við frumvörpin?

    Þingmenn hafa ekki beinan aðgang að þeim vinnugögnum og tölvukerfum sem fjármála- og efnahagsráðuneytið notar við undirbúning fjárlaga- og tekjufrumvarpa. Hins vegar geta þingmenn leitað eftir nánari upplýsingum um forsendur útreikninga o.fl. hjá ráðuneytum, þar á meðal í nefndastörfum og með skriflegum fyrirspurnum. Því verður ekki séð að skortur á upplýsingum og aðgangur að tölvukerfum takmarki þingmenn í að nýta rétt sinn til að bera fram breytingartillögur við frumvörpin.