Ferill 534. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1013 — 534. mál.
Svar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn
frá Oddnýju G. Harðardóttur um hafrannsóknir.
1. Hvaða útgerð eða útgerðir önnuðust svokallað haustrall 2014?
Hafrannsóknastofnun stýrði haustrallinu 2014 og tók ákvarðanir um togtíma og togstaði. Vísindamenn stofnunarinnar voru um borð í þeim skipum sem önnuðust rallið og söfnuðu sýnum í samstarfi við áhafnir skipanna. Þær útgerðir sem lögðu til skip og áhafnir til þátttöku í haustrallinu, gegn endurgjaldi, voru Loðnuvinnslan hf. og Vinnslustöðin hf.
2. Hvað má áætla að það hefði kostað Hafrannsóknastofnun að annast rallið á eigin skipum?
Rekstrar- og starfsáætlun Hafrannsóknastofnunar byggist á verkbókhaldi þar sem kostnaður er brotinn niður á einstök verkefni. Við gerð áætlunar fyrir árið 2014 var kostnaður við haustrall áætlaður 187 millj. kr. Þar af var kostnaður við rannsóknaskip áætlaður 144,4 millj. kr.
3. Var gerður samningur um verkefnið með skilgreindu umfangi þjónustu og um greiðslur úr ríkissjóði, sbr. 5. mgr. 30. gr. laga um fjárreiður ríkisins, og ef svo var, hversu háar voru þær greiðslur?
Hafrannsóknastofnun gerði allítarlega samninga við hlutaðeigandi útgerðir, sem höfðu að geyma lýsingu á umfangi verks, eftirlit, samskipti o.fl. Ráðuneytið staðfesti svo þessa samninga. Um greiðslur er fjallað í svari við næsta tölulið fyrirspurnarinnar.
4. Var greitt með öðru en íslenskum krónum og ef svo er:
a. á hvaða formi voru greiðslurnar og hvert er áætlað virði þeirra í íslenskum krónum,
b. hvernig var staðið að mati á kostnaði þjónustunnar við gerð verksamninganna annars vegar og hins vegar á virði þess sem notað var til greiðslu fyrir þjónustuna,
c. telur ráðherra það samrýmast 2. mgr. 5. gr. laga um Seðlabanka Íslands ef ráðuneyti eða stofnanir, sem undir það heyra, greiða fyrir vörur eða veitta þjónustu með öðru en lögeyri? Óskað er eftir rökstuðningi.
a. Greitt var með aflaheimildum. Leitað var tilboða með auglýsingu í maí 2014 og bárust þrjú tilboð. Tilboð voru opnuð 19. júní og gengið frá samningum á grundvelli þeirra í júlí 2014. Meðalverð í viðskiptum með þorskaflamark frá 1. janúar 2014 til 1. júlí 2014 var 204,56 kr./kg. Um er að ræða 786 þorskígildistonn sem samið var um en samkvæmt framangreindu meðalverði hefði virði heimildanna numið um 160 millj. kr. miðað við framangreindar forsendur. Rétt er að leggja áherslu á að ekki var um að ræða viðskipti með heimildirnar og því eingöngu um ágiskun að ræða. Umræddar rannsóknaaflaheimildir lúta ekki sömu lögmálum og aðrar aflaheimildir, þær eru t.d. ekki framseljanlegar og veiðar á grunni þeirra gátu eingöngu farið fram undir stjórn og eftirliti Hafrannsóknastofnunar og því er samanburðurinn við viðskipti með almennar heimildir ekki alveg raunhæfur.
b. Hafrannsóknastofnun fékk heimild ráðuneytisins til að afla tilboða með svipuðum hætti og fordæmi eru fyrir í marsrallinu sem hefur verið framkvæmt í 30 ár. Hagstæðustu tilboðum var tekið og því fól niðurstaðan í sér hagkvæmasta endurgjaldið fyrir þá þjónustu sem óskað var eftir með útboðinu.
c. Í tilvísaðri lagagrein er mælt fyrir um að seðlar og mynt sem Seðlabankinn gefur út skuli vera lögeyrir til allra greiðslna með fullu ákvæðisverði. Í þessu felst einkum að peningar skuli halda skráðu gildi sínu í viðskiptum. Það er fjármála- og efnahagsráðherra, sem fer með mál er varða lögeyri, sbr. d-lið 7. tölul. 2. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna, að svara fyrir almennt orðaðar spurningar um túlkun greinarinnar. Um valdheimild ráðherra sjávarútvegsmála til að heimila Hafrannsóknastofnun að annast haustrallið með umræddum hætti er hins vegar fjallað hér á eftir.
5. Var heimild fyrir þessum útgjöldum í fjárlögum eða fjáraukalögum? Ef ekki, telur ráðherra útgjöldin standast ákvæði 41. gr. stjórnarskrárinnar þar sem kveðið er á um að ekkert gjald megi greiða af hendi nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum? Óskað er eftir rökstuðningi.
Í 3. gr. laga um stjórn fiskveiða segir að afli sem „veiddur er í rannsóknarskyni á vegum Hafrannsóknastofnunar“ reiknast ekki til heildarafla. Þetta ákvæði kom fyrst til með lögum nr. 85/2002. Í skýringum með ákvæðinu er tiltekið að með greininni sé lagt til að tryggður verði lagagrundvöllur fyrir því að Hafrannsóknastofnun geti stundað rannsóknir á nytjastofnum sjávar með veiðum á þeim án þess að reglur laganna um aflahlutdeild og aflamark eigi við um þær veiðar. Með þessu væri jafnframt lagt til að staðfesta í lögum þá framkvæmd sem verið hefur við lýði.
Afli sem rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar veiða er skráður sem rannsóknaafli og aflaverðmæti sértekjur stofnunarinnar. Að auki hefur Hafrannsóknastofnun í gegnum tíðina átt í ríku samstarfi við útgerðir varðandi rannsóknir og í mörgum tilfellum hefur afli sem fengist hefur í rannsóknum verið skráður sem rannsóknaafli. Frá árinu 1985 hefur svonefnt „vorrall“ farið fram á vegum stofnunarinnar og hafa allt að fimm togarar verið teknir á leigu í allt að þrjár vikur til að annast rallið. Leiga fyrir skipin hefur að mestu verið greidd í peningum en auk þess hafa skipin fengið aflaheimildir sem endurgjald fyrir veitta þjónustu. Sama má segja um svonefnt netarall, en þar er allur afli skráður sem rannsóknaafli og aflaverðmæti skipt samkvæmt samningum á grundvelli útboðs.
Orðalag 3. gr. laga um stjórn fiskveiða, skýringar við lögin og stjórnsýsluframkvæmd gefur til kynna að ráðherra njóti allnokkurs svigrúms til að heimila Hafrannsóknastofnun, eins og í þessu tilviki, að nýta rannsóknaafla í nokkrum mæli til að standa undir kostnaði við hafrannsóknir.
Með þessu kemur 41. gr. stjórnarskrárinnar ekki til álita, enda er þar einungis fjallað um fjárframlög úr ríkissjóði sem hér er ekki til að dreifa.