Ferill 531. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1032  —  531. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur
um notkun þalata.


     1.      Telur ráðherra að nægilegt eftirlit sé með notkun þalata hérlendis og hvernig er því eftirliti háttað?
    Þalöt (phtalates) eru samheiti yfir efni sem hafa þá eiginleika að gefa plasti mýkt og eru notuð í framleiðslu ýmissa vara, svo sem leikfanga, fatnaðar og húsbúnaðar. Skaðsemi þalata hefur verið þekkt um áratugaskeið og því hefur verið sett fram bann og/eða takmarkanir við notkun þeirra í ákveðnum vörum. Mikilvægt er að haft sé eftirlit með þalötum og telja má að það eftirlit sé nokkuð gott hér á landi.
    Umhverfisstofnun annast eftirlit með framkvæmd efnalaga, nr. 61/2013, og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim. Þar fellur m.a. undir reglugerð nr. 750/2008 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni, svokölluð REACH-reglugerð. Reglugerðin bannar og/eða takmarkar notkun ýmissa þalata í vörum og setur um leið skyldur á framleiðendur þessara vara að sjá til þess að vörurnar innihaldi ekki þalötin. Umræðan um skaðsemi þalata hefur fyrst og fremst beinst að þalötum í hlutum, ekki efnablöndum. Ekki er gerð krafa um innihaldslýsingu eða hættumerkingar á hlutum. Hins vegar getur neytandinn kallað eftir upplýsingum um efni í hlutum í verslunum (sjá nánari upplýsingar á vefsíðu Umhverfisstofnunar: www.ust.is/einstaklingar/graenn-lifsstill/efni-i-hlutum/). Framleiðsla úr þalötum hér á landi er óveruleg. Hins vegar geta þalöt verið í innfluttum vörum á borð við leikföng og fatnað og eina leiðin til að hafa eftirlit með því er að efnagreina vöruna til að sannreyna hvort hún innihaldi þalöt. Efnagreiningar eru kostnaðarsamar og hefur ekki verið ráðist í þær hér á landi. Umhverfisstofnun fylgist þó með RAPEX-tilkynningum um ólöglegar vörur á evrópskum markaði og niðurstöðum úr markaðskönnunum í nágrannalöndunum. Umhverfisstofnun getur beitt þvingunarúrræðum og viðurlögum í samræmi við ákvæði efnalaga, nr. 61/2013. Finni Umhverfisstofnun ólöglega vöru á markaði sem tilkynnt hefur verið í RAPEX, þá beitir stofnunin ákvæðum efnalaga til að fjarlægja vöruna af markaði. Stofnunin miðlar einnig góðum ráðum til almennings um hvernig hægt er að forðast snertingu við varasöm efni á vefsíðunni www.grænn.is sem er upplýsingaveita stofnunarinnar umgrænan lífsstíl. Þar er fræðsla sett fram á einfaldan hátt og gefin góð ráð.
    Eins og að framan greinir er það á hendi framleiðenda að tryggja að vörur sem settar eru á markað innihaldi ekki þalöt. Það væri æskilegt að Umhverfisstofnun mundi öðru hverju láta efnagreina vörur til að ganga úr skugga um að þær uppfylli kröfur sem til þeirra eru gerðar. Slíkar efnagreiningar eru kostnaðarsamar og kalla því á aukið fjármagn til Umhverfisstofnunar.

     2.      Í hvaða framleiðslu hérlendis eru takmarkanir á notkun þalata?
    Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun er ekki ástæða til að ætla að mikil framleiðsla fari fram hér á landi úr þalötum þar sem mjög lítill innflutningur á sér stað á hráefnum til slíkrar framleiðslu.
    Þalöt eru, eins og áður sagði, samheiti yfir efni sem hafa þá eiginleika að gefa plasti mýkt og finnast t.d. í PVC-plasti (pólývínýlklóríð). Skaðsemi þalatanna díbútýlþalats (DBP) og bis(2-etýlhexýl)þalats (DEHP) á frjósemi manna hefur verið kunn um áratugaskeið og eru fóstur og nýfædd börn viðkvæmust fyrir þessum efnum. Því hefur verið sett bann og/eða takmarkanir á þessi efni. Þalötin BBP, DEHP og DBP eru leyfisskyld samkvæmt REACH- reglugerðinni og bönnuð í leikföngum og vörum til nota við umönnun barna og almennt í efnavörum fyrir neytendur. Auk þess eru þalötin DINP, DIDP og DNOP bönnuð í leikföngum og umönnunarvörum ætluðum börnum sem þau geta stungið í munninn (t.d. naghringir). Þalöt geta fundist í ýmsum fleiri vörum úr plasti, svo sem gólfefnum, fatnaði og húsbúnaði sem fólk kemst í snertingu við daglega.

     3.      Hefur ráðherra upplýsingar um þróun notkunar á þalötum hérlendis?

    Gera verður ráð fyrir að þróun varðandi notkun þalata hér á landi sé svipuð og gerist í nágrannalöndum okkar þar sem sömu eða hliðstæðar reglur eru í gildi. Notkun skaðlegustu þalatanna í leikföngum og öðrum vörum sem börn geta komist í snertingu við hefur minnkað til muna en í staðinn eru notuð þalöt sem talin eru minna skaðleg. Þalöt eru eftir sem áður notuð við framleiðslu vöru úr PVC-plasti sem þarf að vera mjúk og sveigjanleg.