Ferill 600. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1043 — 600. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um veiðireglur
til verndar ísaldarurriða.
Frá Össuri Skarphéðinssyni.
1. Telur ráðherra æskilegt að sömu veiðireglur og Þingvallanefnd og Orkuveita Reykjavíkur hafa samþykkt til verndar ísaldarurriðanum í Þingvallavatni verði látnar ná til alls vatnsins?
2. Ef svo er, hyggst hann beita sér fyrir því að svo verði og þá hvernig?