Ferill 538. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1055  —  538. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Sigurði Erni Ágústssyni
um ívilnanir í þágu dreifðra byggða .


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Telur ráðherra koma til greina að beita skattkerfinu, með ívilnunum til fyrirtækja og einstaklinga, í þágu dreifðra byggða sem eiga undir högg að sækja?

    Um ívilnanir til fyrirtækja og einstaklinga er fjallað í þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2014–2017. Þar eru nokkrar aðgerðir sem beint og óbeint tengjast beitingu skattkerfisins í þágu dreifðra byggða:
    Í kafla 2.2. Stuðningur við einstaklinga er fjallað um leiðir til að fjölga vel menntuðum einstaklingum á varnarsvæðum landsins. Lagt er til að gerð verði úttekt á leiðum sem nýttar eru í nágrannalöndunum til að styðja við einstaklinga búsetta á svæðum sem eiga undir högg að sækja. Kannaður verði möguleiki á því að námslán íbúa tiltekins svæðis verði afskrifuð um ákveðið hlutfall á hverju ári og kannaður verði möguleiki á að greiddar verði uppbætur á barnabætur íbúa tiltekins svæðis. Stefnt er að því að fela stýrihópi Stjórnarráðsins um byggðamál að vinna að þessum úttektum í samvinnu við Byggðastofnun og skila niðurstöðum fyrir 1. október 2015 eins og kveðið er á um í þingsályktuninni.
    Í kafla 2.3. Stuðningur við fyrirtæki er lagt til að skoðað verði hvort beita megi skattaívilnunum á borð við lækkun tryggingagjalds til að styðja við fyrirtæki á efnahagslega veikum svæðum. Gert er ráð fyrir að Byggðastofnun muni vinna þessa greiningarvinnu og hafi til hliðsjónar reynslu annarra landa af sambærilegum aðgerðum. Verkið er ekki farið af stað en undirbúningur er hafinn.
    Í kafla 3.2 er síðan fjallað sérstaklega um byggðaaðstoð í formi ívilnana vegna nýfjárfestinga og atvinnuuppbyggingar en eins og kunnugt er hafa afslættir af sköttum og gjöldum verið hluti af ívilnunarsamningum vegna iðnaðaruppbyggingar. Sem dæmi má nefna að nýlega hafa verið gerðir samningar við fyrirtæki á Grundartanga, í Helguvík og á Reykjanesi. Þá eiga stjórnvöld í viðræðum um stuðning við fleiri fyrirtæki sem hyggja á nýfjárfestingar utan höfuðborgarsvæðisins. Enn fremur hafa stjórnvöld með markvissum hætti komið að uppbyggingu nauðsynlegra innviða tiltekinna iðnaðarsvæða á landsbyggðinni í tengslum við atvinnuuppbyggingu eins og á Bíldudal, í Norðurþingi og Fjarðabyggð. Jafnframt hafa stjórnvöld áformað að styðja við innviðauppbyggingu í Helguvík að því marki sem hún er nauðsynleg til að tryggja þá atvinnuuppbyggingu sem þar er fyrirhuguð á næstu missirum.
    Þessu til viðbótar má minna á almennar aðgerðir, svo sem endurgreiðslu þróunarkostnaðar fyrirtækja sem vissulega nýtist til jafns fyrirtækjum í dreifðum byggðum og þeim sem staðsett eru annars staðar.
    Í umræðu um sérstakar stuðningsaðgerðir til íbúa í dreifðum byggðum er oft vitnað til Norður-Noregs en þar eru í boði nokkrar af þeim aðgerðum sem vísað er til í stefnumótandi byggðaáætlun. Rétt er þó að hafa í huga að einungis er um afmörkuð svæði nyrst í Noregi að ræða. Þetta á þó ekki við um tryggingagjald en Noregi er skipt í sjö svæði sem hafa allt frá 0–14,1% tryggingagjald. Yfirfærsla þessara aðgerða yfir á Ísland getur verið vandasöm og mundi krefjast vandaðs undirbúnings.