Ferill 614. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1066  —  614. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um kostnað við fjölmiðlaráðgjöf
fyrir lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu.

Frá Jóni Þór Ólafssyni.


    Hver var heildarkostnaður embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu við fjölmiðlaráðgjöf KOM almannatengsla á árunum 2014 og 2015, sundurliðað eftir útgefnum reikningum, vegna:
     a.      samantektar á skipulagi lögreglu við mótmælin 2008–2011,
     b.      svokallaðs lekamáls?


Skriflegt svar óskast.